lesa frétt

Söfnun dósa og jólatrjáa.

5.1.2012
Víkingur mun standa fyrir fjáröflun fyrir barna- og unglingastarf sunnudaginn 8. janúar næstkomandi þegar safnað verður dósum og flöskum, rafhlöðum og ónýtum farsímum.
Um leið gefst áhugasömum m.a. tækifæri á að losa sig við "gamla" jólatréð í Víkinni milli kl. 11:00 og 17:00 fyrir 1.000 kr.

Með því móti losnar þú við tréð, styrkir þitt íþróttafélag og stuðlar að umhverfisvænni framtíð, en trén verða kurluð niður og notuð í moltugerð.


Reykjavíkurborg mun ekki bjóða uppá hirðingu jólatrjáa frekar en í fyrra og því
á hendi hvers og eins að losa sig við tréð.

Tekið er við kortum og þá býðst fólki einnig að senda póst á oliola@vikingur.is eða hringja í síma 581-3245 frá þriðjudegi til föstudags kl. 09:00-16:00 og óska eftir því að tréð verði sótt heim að dyrum.