lesa frétt

Víkingur "lokaði" jólahaldinu með söfnunarátaki

10.1.2012
Árlegt eftirhátíðasöfnun drykkjarvöruumbúða og jólatjáa í hverfum Víkings gekk vel fyrir sig á sunnudaginn var, þrátt fyrir að aðstæður hafi verið erfiðar í fljúgandi hálkunni. Allir skiluðu sér heilir heim, að því best er vitað og eiga þakkir skildar fyrir framlag sitt í gjöfulasta fjáröflunarátaki sinnar tegundar á árinu. 


Færri sjálfboðaliðar mættu til leiks en oft áður en uppskáru samt heldur meira en í janúarsöfnuninni í fyrra, sem trúlega skrifast á tíðarfarið. Heldur fleiri dósir og flöskur skiluðu sér samt í hús hjá Víkingi og fargað var um 250 jólatrjám, álíka og í fyrra.

Verkinu lauk mun fyrr á sunnudaginn en áður. Þar munar mest um að drykkjarumbúðir voru einungis flokkaðar en ekki taldar líka. Talningarvélar Endurvinnslunnar sjá um að kasta tölu á "heildaraflann" við móttöku, sem sparar mikinn tíma og fyrirhöfn.

Janúarsöfnunin er umfangsmikið verkefni og að því kemur fjöldi fólks við að skipuleggja og undirbúa, safna dósum og flöskum, flokka og ganga frá í stórum sekkjum, safna jólatrjám og troða í lestarrými flutningabíls. Alls var tekið við um 250 jólatrjám hjá hverfisbúum og margir lýsa sérstakri ánægju með þá þjónustu að geta losað sig við tré og drykkjarvöruumbúðir á einu bretti strax eftir jól. Níu sjálfboðaliðar lögðu til bíla og kerrur til að flytja jólatrén og fjöldi annarra ökutækja foreldra og aðstandenda iðkenda kom við sögu í dósa- og flöskusöfnuninni.

Söfnunin skilar barna- og unglingaráðum handbolta og fótbolta velþegnum fjármunum til að nota í ungmennastarfinu.

Víkingur sendir íbúum á áhrifasvæði sínu nýársákveðjur með þakklæti fyrir góðar móttökur og liðveislu nú sem fyrr.