lesa frétt

Rakel skoraði en ÍA náði að vinna

10.1.2012

Meistaraflokkur HK/Víkings lék sinn fyrsta mótsleik á árinu 2012 á föstudagskvöldið, í Faxaflóamótinu, og heimsótti þá lið ÍA í Akraneshöllina. Skagastúlkur höfðu betur, 3:1.

Fyrri hálfleikur var í daufari kantinum og ÍA náði þar undirtökunum en staðan var 2:0 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mun betri af hálfu HK/Víkings og Rakel Lind Ragnarsdóttir (mynd) minnkaði muninn í 2:1 á 70. mínútu. Hennar fyrsta mark fyrir meistaraflokk, í sínum öðrum leik.

Unnur Magnúsdóttir var hársbreidd frá því að jafna metin því hún átti þrumuskot í þverslána á Skagamarkinu. Í staðinn bætti ÍA við marki fimm mínútum fyrir leikslok og tryggði sér sigurinn.

Lið HK/Víkings:

Mark:
Guðrún Anna Atladóttir.
Vörn: Katrín Ýr Árnadóttir, Þórhanna Ómarsdóttir, Unnbjörg Ómarsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 35.)
Miðja: Valgerður Tryggvadóttir, Unnur Magnúsdóttir, Anna Margrét Benediktsdóttir.
Sókn: Rakel Lind Ragnarsdóttir, Hugrún Friðriksdóttir (Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir), Þórunn Helgadóttir.
Varamaður: Anna Daníelsdóttir. 
* Guðrún Anna og Unnbjörg skiptu um stöður í hálfleik.

* Katrín Ýr kom frá Álftanesi í vetur og spilaði sinn fyrsta mótsleik fyrir HK/Víking. Elín Sóley lék sinn fyrsta meistaraflokksleik.
* Næsti leikur er ekki fyrr en 4. febrúar, gegn Álftanesi í Fagralundi.

Frétt af heimasíðu HK