lesa frétt

Vorleikur Víkingsgetrauna og VITA - glæsileg verðlaun

13.1.2012










Vorleikur Víkingsgetrauna hefst næstkomandi laugardag 14. janúar. Ferðaskrifstofan VITA og Hótel Hamar í Borgarnesi leggja til frábær verðlaun í leikinn að þessu sinni. Leikurinn er hugsaður fyrir alla og þarf fólk ekki að kaupa raðir sínar hjá Víkingum til að taka þátt í leiknum. Leikurinn er hugsaður fyrir alla áhugamenn um enska boltann.
Verðlaunin eru:

1. 2 x gjafabréf að verðmæti kr. 100.000 hvort frá VITA - www.vita.is. Samtals verðmæti kr. 200.000,-
2. Gisting fyrir tvo í eina nótt með morgunverð og golfhring á Hótel Hamar í Borgarnesi - http://icelandairhotels.is/hotels/hamar

Að auki fá sigurvegarar veglegan farandbikar.

Reglurnar eru eftirfarandi:
Tveir eru saman í hóp og er þátttökugjaldið kr. 3.000,- á mann og verður að greiðast við skráningu. Hægt er að vera einn í hóp en það kostar kr. 6.000,- Hver hópur tippar 2 seðla með 64 röðum (6 tvítryggðir leikir) og skila þarf röðunum fyrir kl. 14 á laugardögum í Víkinni eða á póstfangið 1x2@vikingur.is. Leikurinn stendur yfir í 12 vikur og gilda 9 bestu vikurnar. Keppninni lýkur 31. mars eða helgina fyrir páska.

Nánari upplýsingarum leikinn og skráningu má fá í síma 770-6665.

Gert er ráð fyrir þátttöku um 80-100 hópa og því eru vinningslíkur í leiknum ansi góðar.
Um helgina er 160 milljóna risapottur í Getraunum og því að miklu að keppa.
(Mynd er af sigurvegarara í haustleik Víkingsgetrauna, Gísli Sváfnisson og Hörður S. Bjarnason, hlutu ferð á leiki Bolton-Liverpool og Man. City-Tottenham um aðra helgi.)