lesa frétt

SNJÓR UM VÍÐA VERÖLD - komum börnunum í snjóinn - sunnudagurinn 22. janúar 2012

20.1.2012

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi „World Snow Day“ þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði hvetja börn til skíðaiðkunar.  Dagurinn er hluti hvatningarátaks FIS „Bring children to the snow“ sem staðið hefur frá árinu 2007.

Skíðasamband Íslands SKÍ hefur  svarað  kalli FIS með því að efna til sameiginlegs átaks allra aðildarfélaga sambandsins og skíðasvæðanna.  Þessir aðilar hafa allir sameiginlega hagsmuni af því að fjölga bönum og unglingum sem heimsækja fjöllin.

Tilgangurinn er að hvetja foreldra til að koma með börnin í fjöllin og njóta þar hollrar útivstar í  hreinleika fjallanna. 

Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaganna, skíðasvæðanna og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12  ára og yngri ókeypis á skíði /bretti þennan dag.

 

Hlutverk SKÍ

·        SKÍ ber ábyrgð á verkefninu gagnvart FIS og skilar skýrslu að því loknu

·        SKÍ hefur samband við fjölmiðla og óskar liðsinnis þeirra

·        SKÍ  útbýr sérstakt merki í formi límmiða sem gefið verði öllum börnum 12. ára og yngri sem mæta á skíðasvæði landsins þennan dag auk lukkumiða.

·        SKI útbýr fána sem verða á skíðasvæðunum

·        SKI útbýr sérstök auglýsingaplaköt

·        SKÍ dregur í lukkumiðahappdrætti viku síðar og birtir  vinningsnúmer á heimasíðu sinni

·        SKÍ útvegar skíðafélögunum nauðsynlegt hráefni til kakógerðar

Hlutverk skíðasvæðanna

·        Skíðasvæðin bjóði ókeypis aðgang þennan dag fyrir börn 12. ára og yngri

·        Skíðasvæðin bjóði afslátt af skíða- og brettaleigu

·        Skíðasvæðin leggi sig fram við að brekkurnar / svæðin verði skemmtileg fyrir börnin þennan dag ss æfintýraleiðir oþh ef hægt er að koma því við.

·        Auglýsa daginn hvert á sínu svæði eða í sameiningu

Hlutverk skíðafélaganna

·        Skíðafélögin bjóða upp á heitt kakó milli kl 13:00 og 15:00

·        Skíðafélögin bjóða upp á skíðakennslu fyrir byrjendur milli kl  12 og 14

·        Senda SKÍ lukkumiða að loknum degi

·        Senda SKÍ myndir frá deginum

Bikarmót 13-14 í alpagreinum verður í Hlíðarfjalli þessa helgi.

 

 

Saman stöndum við sterkari, gerum þennan dag eftirminnilegan í fjöllunum.

 

Fh. Skíðasambands íslands

Þórunn Sif Harðardóttir

Framkvæmdastjóri