Víkingur - KR 3-3
26.1.2012
Víkingur gerði í gærkvöldi 3-3 jafntefli við KR í fjörugum leik í Egilshöllinni. Hjörtur Hjartarsson kom Víkingi yfir eftir 11 mínútna leik þegar hann afgreiddi laglega fyrirgjöf frá Kristni Bjartmarssyni.
Næstu tvö mörk voru KR-inga en þar voru að verki Viktor Bjarki Arnarsson og Óli Pétur Friðþjófsson sem báðir eru uppaldir Víkingar. Viktor Jónsson jafnaði svo leikinn í 2-2 fyrir hálfleik.
Á fyrstu mínútum síðari hálfleiks skoraði fyrrum Þórsarinn Atli Sigurjónsson algjört draumamark þegar hann skrúfaði boltann upp í samskeytin fjær og kom KR í 2-3. Áður en yfir lauk jafnaði svo Helgi Sigurðsson fyrir Víking þegar hann kláraði marktækifæri eftir góðan undirbúning frá Kjartani Dige.
Síðustu 15 mínútur leiksins fengu bæði lið mjög góð færi og þá sérstaklega Víkingur. Hannes Halldórsson átti til að mynda þrjár hreint ótrúlegar markvörslur á lokakaflanum sem komu í veg fyrir að Víkingur færi heim með öll stigin gegn Íslands- og bikarmeisturunum.
Næsti leikur Víkings í mótinu er gegn Fram á laugardaginn en áður hafði liðið tapað 1-2 fyrir Leikni og sigrað ÍR 1-0.
Frétt tekin af
www.vikingur.net