Víkingarnir Guðmundur og Eva sigurvegarar Reykjavík International Games 2012í borðtennis
26.1.2012
Í undanúrslitum í einliðaleik karla lék Guðmundur E. Stephensen Víkingigegn Daða F. Guðmundssyni Víkingi þar sem Guðmundur sigraði 4 – 0 (11 – 4, 11 – 3, 11 – 4 og 11 – 6), og í hinum undanúrslitaleiknumlék Adam Harðarson Víkingi gegn Hollendingnum Nathan van der Leeþar sem Nathan sigraði 4 – 1 (11 – 5, 10 -12,14 -12,11 - 8 og 11 – 4)
Úrslitaleikinn lék því Guðmundur gegn Nathan van der Lee, þar sem Guðmundur sigraði 4 – 1 (11 – 5, 12 – 10, 11 – 9, 8 – 11, og 11 – 3).
Í undanúrslitum í einliðaleik kvenna lék Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi gegnFríði Rún Sigurðardóttur KR og sigraði Lilja 4 – 1 (10 -12, 11 – 7, 11 – 3, 11 – 6 og 11 – 6).Í hinum undanúrslitaleiknum lék Eva Jósteinsdóttir Víkingi gegn BergrúnuBjörgvinsdóttur Dímon þar sem
Eva sigraði örruglega 4 – 0 (11 – 4, 11 – 7, 11 – 8 og 11 – 5).
Úrslitaleikinn léku því drottningarnar úr Víkingi Eva Jósteinsdóttir gegn Lilju Rós Jóhannesdóttur. Úr varð hörku viðureignir þar sem Evasigraði að lokum 4 – 2 (13 -11, 3 – 11, 12 – 10,11 – 3, 8 -11 og 11 – 9)
Úrslit voru eftirfarandi:
Einliðaleikur karla: 1. Guðmundur E. Stephensen Víkingur
2. Nathan van der Lee Hollandi
3-4. Adam Harðarson Víkingur
3-4. Daði Freyr Guðmundsson Víkingur
Einliðaleikur kvenna: 1. Eva Jósteinsdóttir Víkingur
2. Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingur
3-4. Fríður Rún Sigurðardóttir KR
3-4. Bergrún Linda Björgvinsdóttir Dímon