Grand Prix mót Rafkaups í borðtennis 2009
17.2.2009
Grand Prix mót
Rafkaups í borðtennis fór fram í TBR húsinu við Gnoðarvog 14. febrúar
2009. Leikið var í opnum flokki karla og kvenna.
Allt besta borðtennisfólk landsins var mætt í keppnina. Í undanúrslitum í
Opnum flokki karla lék Guðmundur E. Stephensen Víkingi gegn
Sigurði Jónssyni Víkingi þar sem Guðmundur sigraði 4 - 0.
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Magnús K. Magnússon Víkingi
gegn félaga sínum úr Víkingi Daða Guðmundssyni, Magnús sigraði nokkuð
örruglega 4 - 0.
Í úrslitaleiknum sigraði
Guðmundur E. Stephensen síðan félaga sinn úr Víking Magnús
K. Magnússon 4 - 0(
11 - 7, 11 - 2, 11 - 4 og 14 - 12).
Í
undanúrslitum í Opnum flokki kvenna sigraði Magnea Ólafs Víkingi Fríði Sigurðardóttir KR
4 - 2 og Guðrún Björnsdóttir KR sigraði Sigrúnu Tómasdóttur KR 4 -
3.
Í
úrslitaleiknum opnum flokki kvenna sigraði Guðrún Björnsdóttir KR Magneu Ólafs Víkingi 4
- 2 í hörkuleik.
Úrslit
voru eftirfarandi:
Opinn
flokkur karla: 1. Guðmundur E. Stephensen Víkingur
2.
Magnús K. Magnússon Víkingur
3-4. Daði F. Guðmundsson Víkingur
3-4. Sigurður Jónsson Víkingur
Opinn
flokkur kvenna: 1. Guðrún Björnsdóttir KR
2. Magnea Ólafs Víkingur
3-4. Fríður Sigurðardóttir KR
3-4. Sigrún E. Tómasdóttir KR




