lesa frétt

ÍR sótti sigur í Víkina

13.2.2010

Víkingar mættu fáliðaðir til leiks. Þeir höfðu engan varamann úr öðrum flokki utan Ísleif markmann en strákarnir úr 3ja og 4ða flokki voru til taks ef þörf væri á. Benni skoraði fyrsta mark Víkinga, ÍR svaraði en Benni skoraði aftur með góðu langskoti. Jói kom Víkingum í 3-1. ÍR svaraði en Jói skoraði úr tveimur vítum í röð og staðan var 5-4. Jón kom Víkingum í 6-4 en þá kom slakur kafli hjá Víkingum og ÍRingar skoruðu 3 mörk í röð þar til Benni jafnaði leikinn 7-7. Liðin skiptust síðan á að skora, Hjálmar jafnaði 8-8 og Jón jafnaði aftur í 9-9. Jói kom Víkingum í tveggja marka forystu með tveimur mörkum í röð. ÍR svarar en Jói skorar enn og staðan er 12-10. Liðin skiptast á að skora, Benni kemur Víkingum í 13-11, Hjálmar skorar og staðan er 14-12 en ÍR skorar tvö síðustu mörk hálfleiksins og staðan er jöfn í hálfleik14-14. Halldór varði mjög vel mestan hluta hálfleiksins og átti sinn þátt í að halda stöðunni jafnri.

Í seinni hálfleik var jafnt á flestum tölum framan af hálfleiknum. Jói skorar 15-15, Hjálmar kemur Víkingum yfir 16-15 og Benni skorar og staðan er 17-16. ÍR skorar tvisvar en Jói jafnar 18-18. Hjálmar kemur Víkingum yfir ÍR jafnar en Hemmi kemur Víkingum enn yfir. ÍR skorar tvisvar en Jón jafnar leikinn og kemur síðan Víkgum yfir með góðu langskoti. ÍR skorar þrjú mörk í röð en Víkingar voru fáliðaðir nokkurn tíma í síðari hluta seinni hálfleiks. Jói minnkar muninn í 23-24 en þá skora ÍRingar þrjú mörk í röð og gera út um leikinn. Víkingar spiluðu maður á mann síðustu mínútuna og náðu að minnka muninn í tvö mörk með tveimur mörkum frá Jóa og hið síðara var skorað sekúndu áður en flautan gall. ÍRingar unnu nokkuð verðskuldaðan sigur, þeir börðust vel allann leikinn og sigu fram úr í jöfnum leik undir lokin. Víkingar geta nokkuð sjálfum sér um kennt um tapið. T.d. misnotuðu þeir tvö vítaköst á meðan ÍRingar skoruðu úr öllum sínum. Í sókninni voru Víkingar á stundum of bráðlátir og náðu þannig ekki að nýta sér góða möguleika þegar þeir voru manni fleiri. Í jöfnum leik þarf að leika af skynsemi og nýta þau tækifæri sem gefast. Mistök geta verið dýr. Þreyta hefur vafalaust verið farin að síga á Víkinga undir lok leiksins en þeir spiluðu með sama liðið inn á allan tímann vegna mannfæðar. Leikmenn fengu einungis hvíld ef þeir voru reknir út af. Mikið leikjaálag tekur sinn toll sem sýndi sig í leiknum. Jói átti góðan leik í sókninni og skoraði 11 mörk. Hjálmar, Benni og Jón stóðu einnig fyrir sínu í sókninni. Vörnin var kannske ekki alveg upp á sitt besta allan tímann. Hemmi og Jón koma sterkir inn í varnarleikinn enda sterkir og burðamiklir strákar. Halldór varði yfir 20 skot í leiknum og átti góðan dag að mestu leiti. Engu að síður tapaðist leikurinn og tvö dýrmæt stig í baráttunni um deildameistarabikarinn.

Þessir skoruðu mörkin:
Benni-5
Jói-11
Jón-4
Hjálmar-4
Hemmi-1