HK náði jafntefli í Víkinni
16.2.2010


Það var eins og Víkingar væru ekki mættir til leiks þegar hann var flautaður á. HK piltar skoruðu hvert markið á fætur öðru á meðan markmaður þeirra varði því sem næst allt sem kom á markið. Þegar sjö mmínútur voru liðnar var staðan 1-6. Hjálmar skoraði fyrsta mark Víkinga. Þá hresstust Víkingar heldur. Hjálmar skoraði annað mark, Benni það þriðja og hjálmar bætti enn við marki og staðan var 4-6. HK skoraði tvö mörk í röð en Hjálmar svaraði. Benni skoraði 6-9 og Hjálmar minnkaði muninn í tvö mörk. HK svaraði með marki en þá urðu kafla skil í leiknum. Víkingar skoruðu hvert markið á fætur öðru án þess að HK næði að svara. Jói skoraði úr þremur vítum í röð, Hjálmar skoraði úr hraðaupphlaupi og Jói jafnaði leikinn 12-12. Hjálmar kom Víkingum yfir 13-12 og Jón skoraði síðasta mark hálfleiksins með mikilli neglu og staðan var 14-12 fyrir Víkinga þegar gengið var til hálfleiks.


HK skoraði fyrsta markið í seinni hálfleik en Gunni svaraði. Ingólfur skoraði síðan gott mark af línunni, Jón skoraði og Gunni aftur og staðan var orðin 18-13. HK svarar en Jón skorar 19-14 og Gunni kemur síðan Víkingum yfir í 20-15 um miðjan hálfleikinn. Þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá Víkingum. HK skorar þrjú mörk í röð áður en Jón skorar 21-18. Gunni skorar í 22-19 en þá skorar HK þrjú mörk í röð og jafnar leikinn. Benni kemur Víkingum yfir, HK jafnar en Hjálmar kemur Víkingum í 24-23. HK jafnar en Hjálmar kemur Víkingum í 25-24 og Jón skorar 26-24. HK nær að Jafna en Jói skorar með mikilli neglu í slána og inn þegar 30 sekúndur eru eftir. Víkingar vörðust allt hvað af tók en HK náði að jafna leikinn úr horninu þegar þrjár sekúndur eru eftir. Mikill darraðardans var stiginn á gólfinu þann tíma sem eftir var og fengu tveir leikmenn úr sitt hvoru liðinu að líta rauða spjaldið. Víkingar fengu aukakast á miðjum velli þegar leiktíminn var liðinn en vörn HK tók það og jafntefli 27-27 var staðreynd. Leikur Víkinga var alltof kaflaskiptur í þessum leik. Þeir voru undarlega lengi í gang en sýndu síðan góðan leik þegar liðið komst í gang. Undir lok seinni hálfleiks seig aftur á ógæfuhliðina og þeir misstu unninn leik niður í jafntefli. Halldór var nokkuð misjafn í leiknum. Hann missti inn of mörg óþarfa skot en síðan varði hann eins og berserkur inn á milli og þar meðal annars tvö vítaskot. Það var óþarfi fyrir Víkinga að tapa þessum leik niður í jafntefli. HK piltar börðust vel, gáfust aldrei upp og uppskáru stig.
Fleiri myndir frá leiknum eru hér.


Þessir skoruðu mörkin:
Hjálmar-9
Benni-3
Jói-5
Jón-5
Gunni-4
Ingólfur-1