Víkingur - Selfoss á föstudag kl: 19:30 - Góður möguleiki á N1 deildar sæti -Fyrirkomulag úrslitakeppni 1 deildar.
18.2.2010
Nú verða allir Víkingar að mæta á leikinn og styðja við okkar stráka því það eru góðir möguleikar á því að tryggja sér sæti meðal þeirra bestu.
Leikurinn gegn Selfoss er mjög mikilvægur þar sem að spennan um 4 efstu sætin í deildinni er mjög jöfn. Reglunar eru þannig að efsta liðið fer beint upp í stað neðsta lið N1 deildarinar. Síðan fer fram úrslitakeppni um eitt laust sæti en lið númer 2 og 3 annarsvegar og lið 4 og næst neðsta lið N1 deildarinar spila einvígi um réttin til að spila um sætið í N1 deildinni. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í þessum einvígi spilar í N1 deildinni að ári.
Eins og er þá erum við í 4 sæti en það eru aðeins 3 stig í ÍBV sem er í 3 sæti en síðan er aðeins 1 stig í ÍRinga sem eru í 5 sæti og því skiptir hver leikur gríðarlega miklu máli, sjá stöðuna neðst.
Við hvetjum því alla stuðningsmenn að flykjast á leikinn gegn Selfoss.
Munið aðeins 500 krónur inn.
Leikirnir sem eru eftir:
19/02 Víkingur - Selfoss
05/03 UMFA - Víkingur
12/03 Víkingur - Þróttur
19/03 Fjölnir - Víkingur
30/03 Víkingur - ÍR
07/04 ÍBV - Víkingur
Staðan í deildinni:
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Selfoss |
12 |
10 |
0 |
2 |
376:282 |
94 |
20 |
| 2. |
Afturelding |
12 |
9 |
1 |
2 |
331:272 |
59 |
19 |
| 3. |
ÍBV |
12 |
8 |
0 |
4 |
356:317 |
39 |
16 |
| 4. |
Víkingur |
12 |
6 |
1 |
5 |
328:273 |
55 |
13 |
| 5. |
ÍR |
12 |
6 |
0 |
6 |
326:318 |
8 |
12 |
| 6. |
Fjölnir |
12 |
1 |
1 |
10 |
233:382 |
-149 |
3 |
| 7. |
Þróttur |
12 |
0 |
1 |
11 |
261:367 |
-106 |
1 |