lesa frétt

Víkingur - KA/Þór laugardag kl 16:00 í N1 deild kvenna

18.2.2010
Stelpurnar spiluðu einn sinn besta leik í ár gegn FH og því eru möguleikarnir gegn norðanstúlkum góðir.

Liðið hefur smá saman verið að öðlast reynslu á meðal þeirra bestu og þrátt fyrir mikill meiðsli og  stór töp þá er baráttu andinn og ánægjan meira en enn fyrir hendi.   Þessi ungi hópur á hrós skilið fyrir að leggja mikla vinnu á sig til að þróa kvennahandboltan hjá okkur Víkingum og eru þessar stelpur miklar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur.  Við höfum verið að nota stelpur úr 4 fl. í sumum leikjunum og öðlast þær því dýrmæta reynslu sem gerir þær tilbúnar undir komandi ár. 
Nokkrir "eldri" leikmenn hafa hoppað inn í nokkra leiki þegar við höfum þarfnast aðstoðar og hafa þær staðið sig með sóma og hjálpað og stutt okkar stelpur áfram.
KA/Þór hafa komið á óvart í vetur og eru með stórskemmtilegt lið en það von á hagstæðum úrslitum ef stelpurnar okkar finna fyrir góðum stuðningi okkar Víkinga.

Við hvetjum því alla Víkinga til að mæta á leikinn á laugardag óg styðja stelpurnar okkar til dáða.

Áfram Víkingur