lesa frétt

Víkingur vann Val á Hlíðarenda í 2. fl. kk.

23.2.2010

Víkingar hófu leikinn vel og Benni skoraði fyrsta markið. Jói kom Víkingum síðan yfir í 1-2. Benni og Jói skiptust síðan á um að skora framan af hálfleiknum og Víkingar komust í 4-7. Þá tóku Valsmenn góðan kipp og jöfnuðu leikinn í 8-8. Hjálmar skoraði tvö góð mörk og kom Víkingum í 8-10, Jón skoraði 8-11 og Benni og Jói komu Víkingum í 9-13. Valsmenn klóruðu í bakkann undir lok hálfleiksins og Víkingar leiddu í hálfleik með 12-15.

Víkingar byrjuðu af krafti í seinni hálfleik. Með tveimur mörkum frá Hjálmari og marki frá Benna komust Víkingar í 12-18. Þá skoruðu Valsmenn mark en Jói kom Víkingum í 13-19. Þá skoruðu Valsmenn þrjú mörk í röð en Benni skoraði 16-20. Jón og Hemmi skoruðu tvö mörk, Valsmenn skora og Hemmi skorar annað mark úr horninu. Þá skora Valsmenn tvö mörk en Hjálmar eykur forystu Víkinga í 20-24. Þá skora Valsmenn þrjú mörk í röð og minnka muninn í eitt mark. Þeir tíku Benna úr umferð á þessum kafla og riðlaðist sókn Víkinga aðeins. Jón neglir boltanum í hornið og Ingólfur skorar gott mark af línunni og Víkingar eru komnir með þriggja marka forystu á nýjan leik. Valsmenn skora en Ingólfur brýst í gegn og skorar annað mark. Jói skorar með miklu þrumuskoti og Hjálmar eykur forystuna í fimm mörk með marki af línunni. Jói innsiglaði síðan sigur Víkinga með skoti frá miðju á síðustu sekúndu leiksins en lokastaðan var 24-30.

Leikur Víkinga var fullköflóttur í þessum leik. Þeir höfðu yfirhöndina allan leikinn en misstu niður gott forskot trekk í trekk og gáfu Valsmönnum óþarfa vind í seglin. Víkingar leystu vel úr stöðunni einum færri og skoruðu þá tvö mörk. Þeir misnotuðu of mörg dauðafæri í leiknum og höfðu alla burði til að vinna stórsigur. Halldór stóð sig vel í markinu og varði m.a. eitt vítakast.
Fleiri myndir frá leiknum.

Þessir skoruðu mörkin:
Benni-7
Jói-9
Hjálmar-7
Jón-3
Hemmi-2
Ingólfur-2