Selfoss sigraði Víking 2. fl. kk í Víkinni
3.3.2010


Víkingar byrjuðu leikinn betur og leiddu í upphafi. Hjálmar skoraði fyrsta markið úr hraðaupphlaupi. Hann bætti svo við öðru marki af línunni. Jón skoraði síðan mark með langskoti og staðan var 3-2, Víkingum í vil. Jói kom Víkingum í 4-2 en Selfoss jafnaði. Jói kom Víkingum í 5-4 og hann skoraði síðan aftur úr víti og staðan var 6-5. Selfoss jafnaði og í stöðunni 6-6 voru tveir Víkingar reknir útaf í einu. Þeir stóðu sig vel í vörninni og náðu að halda jöfnu þrátt fyrir að vera tveimur færri inni á vellinum. Hemmi kom Víkingum yfir í 7-6 með góðu marki úr horninu, Selfoss jafnaði en Hemmi skoraði aftur úr horninu og staðan var 8-7 þegar um 20 mínútur voru liðanr af hálfleiknum. Þá fór allt í baklás hjá Víkingum og þeir skoruðu einungis eitt mark það sem eftir var hálfleiksins á meðan Selfoss skoraði sjö mörk og breyttu stöðunni í 9-14 sér í hag fyrir hálfleik. Þetta er ekki í fyrsta sinn í vetur sem svona kaflar koma hjá Víkingum. Stundum hafa þeir náð að vinna sig út úr því en á móti eins sterku liði og Selfoss er þá þýðir ekki að færa þeim svona stórt forskot á silfurfati. Undarlegt var að sjá að þjálfarar Víkinga skyldu ekki einu sinni taka leikhlé á þessum kafla og gera þannig tilraun til að brjóta upp þessa stöðu og endurskipuleggja leik liðsins.


Selfoss hélt forskotinu í seinni hálfleik og jók heldur forystuna framan af hálfleiknum. Hjálmar skoraði fyrsta mark Víkinga eftir hlé og og Hemmi bætti tveimur mörkum við. Í stöðunni 12-18 voru aftur tveir Víkingar reknir útaf en aftur náðu þeir að halda jöfnu í þdeirri stöðu. Benni skoraði 13-18 og Jón bætti því 14. við. Benni skoraði aftur í stöðunni 15-20 og Hjálmar skoraði 16-21. Hann minnkaði muninn enn í 17-21 og Jói skoraði í stöðunni 18-23. Hjálmar minnkaði muninn í 19-23 og Jói í 20-23. Selfoss skorar en Jón skorar og minnkar muninn í 21-24. Jón skorar svo aftur í stöðunni 22-25. Þarna var aftur kominn spenna í leikinn og fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum. Víkinga vantaði síðan herslumuninn til að láta kné fylgja kviði og ekkert gekk upp hjá þeim á lokamínútunum á meðan Selfoss skoraði fjögur síðustu mörkin og unnu sigur 22-29.


Markmenn liðanna voru bestu menn vallarins í gær. Halldór varði tæp 20 skot og markamaður Selfyssinga yfir 20 skot og hélt hann liðinu á floti langtímum saman. Hjálmar stóð sig einnig vel þrátt fyrir mikinn slag á línunni. Það var í þessum leik eins og oftar að það virðist sem aðrar reglur gildi um brot á honum en öðrum leikmönnum. Andstæðingunum leyfist að tæta utan af honum bolinn, hanga aftan í honum með báðum höndum og henda sér aftan í skothendina og það er dæmt aukakast eða í besta falli víti. Þrátt fyrir þetta fékk einungis einn Selfyssingur tvær mínútur fyrir brot á Hjálmari. Það verður að gera þá kröfu til dómara sem gefa sig í dómgæslu að þeir hafi metnað gagnvart verkefninu þegar leikmenn og þjálfarar eru búnir að vinna hörðum höndum frá því í haust. Frammistaða þeirra bitnaði kannski ekkert frekar á Víkingum en Selfyssingum í leiknum. Í þessum leik var dæmt eftir þeirri línu að ef heyrðist múkk í þjálfurum þá var gult spjald komið á loft og Róbert fékk síðan dæmdar á sig tvær mínútur fyrir hógværar athugasemdir. Það er allt í lagi að keyra svona línu en þegar þjálfurum leyfist hjá öðrum dómurum að láta stóryrðin dynja á dómurunum án viðbragða þá er erfitt að sjá samhengi í hlutunum. Vörn Víkinga spilaði vel stóran hluta leiksins en gaf eftir undir lok hans. Sóknin var öllu mistækari en markvarslan góð eins og áður segir. Víkingar keyra á fáum mönnum vegna meiðsla og forfalla og því er meira álag á þeim en ella. Það breytist vonandi áður en tímabilið er úti. Fleiri myndur frá leiknum eru
hér.
Þessir skoruðu mörkin:
Hjálmar-7
Jón-4
Jói-5
Hemmi-4
Benni-2