lesa frétt

Stórleikur hjá 4. flokki kvenna um helgina Víkingur - Fram

5.3.2010
Það verður hörkuleikur á sunnudaginn kl 17:00 þá tekur fjórði flokkur kvenna á móti Fram í Víkinni.

Víkingur er í fyrsta sæti í  deildinni búnar að tapa einu stigi en Framara eru búnar að tapa tveimur stigumog eru í öðru sæti.

Þetta verður háspenna allan leiktímann.

Hvetjum alla Víkinga að mæta og hvetja okkar stelpur. Þarna eru margar af efnilegustu handboltakonum landsins.

Koma svo – handbolti er skemmtilegur