lesa frétt

HK/Víkingur - undirskriftir leikmannasamninga

7.3.2010

Unnið er hörðum höndum að því að skipuleggja umgjörðina um meistaraflokk kvenna og 2. flokk sem leika undir merkjum samstarfs HK og Víkings.

Liður í því ferli er að ganga frá skriflegum samningum við alla leikmenn samstarfsins, bæði þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í 2. flokki sem og eldri leikmenn. Á vettvangi samstarfsins stendur hugur umsjónarráðsins til þess að hafa umgjörðina sem traustasta í flestu tilliti og felur þessi pennagleði einmitt einn þáttinn í því.

Mikil undirskriftartörn fór fram í liðinni viku af þessu tilefni, fyrst í Víkinni á þriðjudag þar sem Víkingar sem leika undir merkjum samstarfsins rituðu undir samninga og svo á miðvikudaginn í Fagralundi þar sem leikmenn úr HK gerðu slíkt hið sama. Þar sem um samstarf tveggja íþróttafélaga er að ræða þá er það formlega svo að félögin sem slík gera samninga við sína leikmenn sem leika svo saman undir merkjum samstarfsins í búningi sem á sér skírskotun til búninga beggja liða. Við þetta undirskriftartækifæri var jafnframt kynnt til sögunnar ný útfærsla af búningi samstarfsins. Næsta keppnistímabil mun veðra leikið í búningum frá Hummel rauðum og svörtum sem leikmenn mátuðu sig einmitt í við undirsrkiftina. Voru allir á einu máli um að nýji búningurinn væri mjög flottur en hann ætti að vera kominn í gagnið fyrir sumarið í það minnsta.

Búið er að rita undir samninga við 22 leikmenn en nokkrir eftir enn sem ekki áttu heimangengt þessa nefndu daga þannig að enn á eftir að fjölga leikmönnum á samningi.

Frétt af heimasíðu HK
Hér meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru við þessi tækifæri, valdar af handahófi.

Mynd 1. Viggó Magnússon stjórnarmaður í knattspyrnudeild HK handsalar samninginn við Guðrúnu Önnu Atladóttir.
Mynd 2. Heimir Gunnlaugsson, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings handsalar samninginn við Telmu Dögg Óskarsdóttur.
Mynd 3. Hildigunnur S. Eldjárn kvittaði líka.
Mynd 4. Þórunn Helgadóttir var með pennan á lofti í Víkinni.
Mynd 5. Guðrún Hermannsdóttir og Viggó brostu stórum.












Til baka