3. flokkur kvenna deildarmeistari í handbolta 2010.
11.3.2010

Þriðji flokkur kvenna varð deildarmeistari í handbolta árið
2010 eftir að liðið vann glæstan sigur á liði HK í gærkveldi 24 – 22. Leikurinn
var mjög spennandi en liðið hafði sigur eftir dramatískar lokamínútur og
tryggði sér þannig 2. Deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að það séu enn eftir
tvær umferðir af mótinu. Liðið hefur
eingöngu tapað einum leik í vetur og ætlar sér stóra hluti í úrslitakeppninni
sem hefst í apríl. Þetta er annar titil
3 fl. kvk. í vetur þar sem að þær
lönduðu Reykjavíkurmeistaratitil síðastliðið haust. Það eru því bjartir tímar framundan í
kvennahandboltanum hjá okkur Víkingum. Fleiri myndir frá leiknum hér.
Til hamingju stelpur
Til hamingju Víkingur.