2. fl. kvenna lét ekki sitt eftir liggja og fylgdi góðu fordæmi 2. fl. karla HK sem sigraði Stjörnuna stórt fyrr á föstudagskvöldi. Þróttur varð fyrir leikmönnum HK/Víkings sem sigraði einnig með 5 mörkum gegn engun þetta sama kvöld. Strax frá fyrstu mínútu var ljóst í hvað stefndi í þessum leik. HK/Víkingur sótti stíft og pressaði andstæðinginn framarlega á vellinum sem komst fyrir vikið lítt áleiðis þannig að fyrr en varði var staðan orðin 2-0 fyrir heimaliðið. Fyrst skoraði Natalía Reynisdóttir eftir snilldarsendingu Diljár Helgadóttur þar sem Natalía var óvölduð og afgreiddi boltann af yfirvegun í markið. Síðan skoraði Elma Lára Auðunsdóttir næsta mark með skalla eftir hornspyrnu Diljár og þriðja markið var svo framfreitt að hætti Elmu, stakk sér í gegnum vörnina og skaut með vinstri að marki, markmaðurinn varði en boltinn barst á ný til Elmu sem skoraði með öruggu skoti með hægri. Þegar sett er í þennan gírinn þarf ekki fleiri í sóknina. Þannig var staðan í hálfleik, 3-0. Þróttur komst lítt áleiðis og forystan örugg en þær sóknarlotur sem liðið freistaði að byggja upp strönduðu á góðri vörn þar sem fremst meðal jafningja var Marta Jónsdóttir og svo var Margrét Ýr Björnsdóttir öryggið uppmálað þar fyrir aftan. Síðari hálfleikur spilaðist svipað, HK/Víkingur réði lögum og lofum á vellinum og nú komst Þróttur hreinlega ekkert áfram. Fjórða mark HK/Víkings var snilldarlega útfærð sókn, ættuð beint af töfluæfingu; Ingibjörg Sigvaldadóttir sem stjórnaði leik liðsins á miðjunni dyggilega studd af Diljá og Hildigunni S. Eldjárn lyfti boltanum á hárréttu augnabliki og hárnákvæmt út á vinstri kant þar sem Elma Lára stakk varnarmann af og lagði boltann af öryggi í hornið fjær óverjandi. Elma Lára fullkomnaði svo fernuna með því að negla boltanum utan af velli þannig að hann datt rétt undir markslána. Urðu það endanleg úrslit á leik þar sem allir leikmenn liðsins áttu ljómandi góðan dag. HK/Víkingur er þar með komið áfram og á næst leik gegn Val á útivelli þann 19. júlí í 8 liða úrslitum en Valur vann Fylki, 6-3, í 16-liða úrslitunum í kvöld. Mynd 1. Elma Lára skorar þriðja markið með hnitmiðuðu skoti án þess að markmaðurinn fái rönd við reist. Mynd 2. Natalía skoraði fyrsta markið og er hér algerlega á auðum sjó í aðdraganda marksins. Mynd 3. María Rún Gunnlaugsdóttir lék sinn fyrsta leik í 4 mánuði en hún er að ná sér af meiðslum. Mynd 4. Þórunn Helgadóttir er líka að stíga sín fyrstu skref eftir þrálát öklameiðsli frá því skömmu eftir áramót. Mynd 5. Diljá átti mjög fínan leik á miðjunni.