Almenningsíþróttadeild Víkings tekur til starfa.
21.6.2010

Almenningsíþróttadeild Víkings tekur til starfa.
Almenningsíþróttadeild Víkings býður upp á fjölbreytta þjálfun undir leiðsögn íþróttafræðings. Kynningatímar og hlaupamælingar verða haldnar dagana 23. 28. og 30. júní auk 5. júlí kl. 18:00. Þá verður afhent hlaupaprógramm til að fylgja yfir sumarið.
Í lok ágúst munu fleiri hópar fara í gang en stefnt er að því að stofna bæði stafgönguhóp og útivistarhóp.
Vonumst við til að sem flestir komi þá til með að nýta sér það sem almenningsíþróttadeildin hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veitir
Bjarney Gunnarsdóttir íþróttafræðingur
bjarneygunn@gmail.com
gsm. 696-3984