2. fl.kvenna: Markverðir í aðalhlutverkum
25.6.2010
HK/Víkingur
tók á móti Haukum á Íslandsmóti 2. flokks kvenna í sól og blíðu í
Víkinni í kvöld. Haukar höfðu betur, 3:1, í leik sem bauð uppá fjölda
góðra marktækifæra en markverðirnir sáu til þess að mörkin urðu ekki
helmingi fleiri en fjögur.
Það voru Margrét Ýr Björnsdóttir í
marki HK/Víkings og jafnaldra hennar og HK-ingur í marki Hauka, Regína
Jónsdóttir, sem voru í aðalhlutverkum og vörðu hvað eftir annað mjög
vel.
Haukar náðu forskoti strax á fyrstu 10 mínútunum með því að
komast í 2:0 og þannig stóð í hálfleik þrátt fyrir nokkur góð færi á
báða bóga. Guðrún Hermannsdóttir var næst því að skora fyrir HK/Víking
þegar hún skaut í þverslána, niður í aðra stöngina, þaðan í hina og
út...!
Elma Lára Auðunsdóttir kom inná sem varamaður hjá
HK/Víkingi í hálfleik og hennar fyrsta verk var að æða upp vinstri
kantinn og alla leið inní vítateig þar sem hún lagði boltann snyrtilega
í hornið fjær, 2:1.
Eftir það skiptust liðin á færum, Haukarnir
voru þó heldur ágengari og náðu m.a. að skjóta yfir mark HK/Víkings úr
vítaspyrnu. Þeim lánaðist að skora þriðja markið eftir að Margrét hafði
varið tvisvar glæsilega úr dauðafærum og hinum megin kom Regína í veg
fyrir að mörk HK/Víkings yrðu fleiri.
Frétt af heimasíðu HK
Mynd 1: Ingibjörg Björnsdóttir og Telma Dögg Óskarsdóttir í varnarbaráttu gegn framherja Hauka.
Mynd 2: Berglind Anna Víðisdóttir lék í vörninni í fyrri hálfleik og á miðjunni í þeim síðari.
Mynd 3: Elma Lára Auðunsdóttir gerði usla í vörn Hauka í seinni hálfleik og skoraði gott mark.