lesa frétt

HK/Víkingur í 3. sæti: Uppskeran framar vonum

30.6.2010

 

HK/Víkingur vann í kvöld sinn fjórða sigur í fyrstu sex leikjunum í 1. deild kvenna með því að leggja lið Tindastóls og Neista að velli, 2:0, í Víkinni. Tinna Óðinsdóttir og Kristín Ósk Óskarsdóttir skoruðu mörkin.

HK/Víkingur er þar með kominn með 12 stig í þriðja sæti B-riðils en fyrir ofan eru Þróttur R. og Keflavík með 15 stig hvort.

Staðan í deildinni.

Leikurinn hófst af krafti. Tindastóll/Neisti átti fyrsta færið á 3. mínútu en HK/Víkingur skoraði á 6. mínútu. Guðrún Hermannsdóttir átti fallega sendingu upp kantinn á Tinnu sem skoraði með fallegu skoti, 1:0.

Tindastóll lék fast en góður dómari hélt leiknum vel í skefjum. HK/Víkingur var mun betri aðilinn en náði ekki að bæta við marki fyrir hlé.

Í seinni hálfleik hélt liðið góðri varnarstöðu með Guðrúnu Önnu Atladóttur örugga í markinu. HK/Víkingur fékk töluvert af marktækifærum en það var ekki fyrr en á 80. mínútu þegar Kristín Ósk brunaði í gegnum vörnina og skoraði smekklegt mark, að sigurinn var innan seilingar.

"Við töpuðum fyrir þeim í bikarnum á Sauðárkróki um daginn þannig að við vissum að Tindastóll/Neisti er með hörkulið. Þennan leik áttum við hinsvegar með manni og mús og þó staðan væri lengi bara 1:0 var sigurinn í raun aldrei í hættu. Ég er ánægður með dömurnar mínar í dag, þær spiluðu ágætlega á köflum og börðust vel. Nú er fyrri umferð lokið og uppskeran er framar vonum. Við höfum bætt okkur mikið og vonandi verður framhald þar á," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.


Liðið var þannig skipað:

Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir 

Varnarmenn:
Arndís Rós Stefánsdóttir 
Anna Margrét Benediktsdóttir 
Ingibjörg Björnsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir (Lovísa Þorsteinsdóttir 81.)

Tengiliðir:
Valgerður Tryggvadóttir 
Heiður Loftsdóttir 
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Rakel Lind Ragnarsdóttir 58.)

Framherjar:
Tinna Óðinsdóttir 
Kristín Ósk Óskarsdóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 81.)
Guðrún Hermannsdóttir (Hjördís H. Sigurðardóttir 77.)

Varamaður:
Margrét Ýr Björnsdóttir 
 
Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Berglind Anna Víðisdóttir 
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Hildigunnur Sól Eldjárn
Inga Lára Óladóttir 
Kristín Lilja Friðriksdóttir 
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir 
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Fimmtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Rakel Lind lék sinn fyrsta meistaraflokksleik. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Valgerður lék sinn 80. leik með meistaraflokki og Tinna skoraði sitt 10. mark. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
 
* Þetta var annar mótsleikur HK/Víkings og Tindastóls/Neista í meistaraflokki. Liðin hafa nú unnið sinn leikinn hvort. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er heimaleikur gegn Álftanesi 12. júlí. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd 1: Kristín Ósk Óskarsdóttir skoraði annað markanna og sækir hér að marki norðanstúlkna.
Mynd 2: Rakel Lind Ragnarsdóttir, 14 ára, lék sinn fyrsta meistaraflokksleik og er hér í baráttunni.
Mynd 3: Heiður Loftsdóttir býr sig undir að taka aukaspyrnu.
Mynd 4: Tinna Óðinsdóttir að sleppa í gegn en hún skoraði sitt 10. meistaraflokksmark.
(Myndir Óðinn og Björn)

Frétt af heimasíðu HK