Almenningsíþróttadeildin fer vel af stað.
1.7.2010
Núna hafa hátt í 30 Víkings-hlauparar mætt í hlaupapróf hjá
Bjarneyju, þjálfara almenningsíþróttadeildarinnar. Prófin hafa gengið
vel og hafa bæði gamalreyndir hlauparar og byrjendur spreytt sig. Við
hvetjum alla áhugasama til að mæta á mánudaginn, 5. júlí í hlaupapróf og
fá æfingaáætlun fyrir sumarið. Æfingaáætlanirnar eru þrjár: fyrir þá
sem vilja hlaupa skemmtiskokk 3KM, fyrir þá sem stefna á 10KM hlaup og
fyrir þá sem ætla að fara í hálf-maraþon 21KM.
Í haust
verður haldið áfram með þjálfun skokkhópsins auk þess
mun almenningsíþróttadeild Víkings byrja með gönguhóp og útivistarhóp :)