Handboltaskóli Víkings 16. - 20. ágúst
8.7.2010
HANDBOLTASKÓLI VÍKINGS
16.-20. ágúst 2010
Handboltaskóli VÍKINGS er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.
Hópnum verður skipt upp eftir aldri, 6-9 ára og 10-12 ára. Með því munum við koma til móts við þarfir og getu hvors hóps. Farið verður í grunnatriði handboltans og einnig byggt ofan á þá reynslu sem börnin hafa öðlast.
Tilvalið fyrir krakka sem vilja byrja að æfa og fá því kraftmikla og góða byrjun. Einnig gott fyrir þá sem hafa æft áður og vilja bæta sig en meira fyrir komandi vetur.
Aðalatriðið er fyrst og fremst að koma saman og hafa gaman af því að æfa og spila handbolta.
Námskeiðið stendur í eina viku, frá kl. 09:00-12:00.
Skólastjóri er Sigrún Bynjólfsdóttir þjálfari 7. og 8. flokks kvenna og kennari.
Þjálfarar yngri flokkanna koma og aðstoða við skólann og kynna starfið næsta vetur.
Verð; kr. 4000.-
Síðan þarf að millifæra þátttökugjaldið inná reikning 0130-05-79019, kt. 520804-2420 áður en námskeið hefst.
Einnig er hægt að greiða með kreditkorti.
Í skýringu á millifærslu þarf að koma fram nafn og kennitala þátttakanda og senda síðan kvittun á
oliola@vikingur.is
Skráningablað