lesa frétt

Minning

15.7.2010

 

Vilhelm Ingvar Andersen fyrrum formaður knattspyrnudeildar, stjórnarmaður í aðalstjórn og leikmaður Víkings verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag fimmtudaginn 15. júlí kl. 15:00. Vilhelm fæddist 6.4. 1936 í Reykjavík. Hann andaðist 7.7. 2010.

Vilhelm sat í stjórn knattspyrnudeildar á árunum 1972-19676, þar af sem formaður á árunum 1973-1976. Þá sat Vilhelm í aðalstjórn árin 1976-1980. Vilhelm var sæmdur gullmerki félagsins fyrir vel unnin störf í þágu Víkings.

Knattspyrnufélagið Víkingur þakkar Vilhelm fyrir samfylgdina og hans miklu og óeigingjörnu störf í þágu félagsins. Eftirlifandi eiginkonu hans Guðrúnu Öldu Kristinsdóttur, börnum hans og fjölskyldu sendum við einlægar samúðarkveðjur. 

Hvíl í friði kæri félagi.