Knattspyrnu- og lífstílsnámskeið
16.7.2010
Í sumar er í boði knattspyrnu- og lífstílsnámskeið fyrir börn og unglinga með sérþarfir hér í Víkinni. Pétur Örn Svansson og Egill Atlason, leikmenn meistaraflokks Víkings sjá um námskeiðið og er það haldið í samvinnu við Reykjavíkurborg. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9-12 fyrir hádegi og er miðað við aldursbilið 6-18 ára. Hvert námskeið stendur yfir í tvær vikur í senn og kostar kr. 6000.
Dagskrá námskeiðsins er mjög fjölbreytt þar sem þekktir knattspyrnuleikmenn koma og taka þátt í æfingum, fræðsla um heilsusamlegt mataræði og fullt af öðru skemmtilegu. Hverju námskeiði lýkur svo með grillveislu og verðlaunaafhendingu.
Fyrsta námskeiðinu lauk síðasta föstudag og gekk það vonum framar. Meðfylgjandi eru myndir frá síðasta námskeiði. Einnig er hægt að fara inn á facebook
síðu námskeiðsins og skoða skemmtileg myndbönd af krökkunum:
Skráning og frekari upplýsingar fara fram í síma 892-3007 (Pétur) eða í síma 615-0304 (Egill).
Sjá AUGLÝSINGU