lesa frétt

HK/Víkingur sigraði á Húsavík

17.7.2010

Stúlkurnar í meistaraflokki HK/Víkings gerðu það gott norður á Húsavík í dag þegar þær sigruðu Völsung, 3:1, í 1. deild kvenna. Guðrún Hermannsdóttir skoraði tvö markanna og Tinna Óðinsdóttir eitt. Staðan var 2:0 í hálfleik.

Með þessum úrslitum er HK/Víkingur enn með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en liðið hefur unnið sex af átta leikjum sínum í sumar. Þróttur R. er með 24 stig, Keflavík 21 og HK/Víkingur 18 þegar hvert lið á eftir að spila fjóra leiki. Tvö þau efstu komast í fjögurra liða úrslitin í deildinni.

HK/Víkingsstúlkur gista á Húsavík í nótt en halda síðan til Akureyrar þar sem þær mæta Draupni í Boganum á morgun klukkan 14.00.

Liðið var þannig skipað:

Byrjunarlið:
Guðrún Anna Atladóttir 
Anna Margrét Benediktsdóttir 
Arndís Rós Stefánsdóttir 
Ingibjörg Björnsdóttir 
Sólveig Þórarinsdóttir
Valgerður Tryggvadóttir 
Kristín Lilja Friðriksdóttir 
Heiður Loftsdóttir 
Tinna Óðinsdóttir 
Guðrún Hermannsdóttir 
Hjördís H. Sigurðardóttir 

Varamenn:
Berglind Anna Víðisdóttir 
Ingibjörg Sigvaldadóttir 
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir 
Hildigunnur Sól Eldjárn

Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Inga Lára Óladóttir 
Kristín Ósk Óskarsdóttir 
Lovísa Þorsteinsdóttir
Margrét Ýr Björnsdóttir 
María Rún Gunnlaugsdóttir 
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir 
Sólrún Sigvaldadóttir 
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)

* Sextán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.

* Sigurrós er komin í 5.-6. sæti yfir leikjahæstu leikmenn meistaraflokks frá upphafi. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
 
* Þetta var fjórði mótsleikur HK/Víkings og Völsungs í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur hefur unnið 2, Völsungur 1 og 1 hefur endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti mótsleikur er gegn Draupni í Boganum á Akureyri á morgun, sunnudag, kl. 14.00. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd:
Guðrún Hermannsdóttir skoraði tvívegis og hefur gert fimm mörk í síðustu tveimur leikjum HK/Víkings.


Frétt af heimawsíðu HK