lesa frétt

Minning

19.7.2010

Sigurður Sveinn Jónsson fyrrum formaður handknattleiksdeildar og fyrrum formaður HSÍ verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag mánudaginn 19. júlí kl. 13:00. Sigurður fæddist 4.1. 1933 í Reykjavík. Hann andaðist 12.7. 2010.

Sigurður sat í stjórn handknattleiksdeildar á árunum 1969-1973, þar af sem formaður á árunum 1969-1971 og aftur 1972-1973. Þá gegndi hann formennsku hjá HSÍ á árunum 1974 til 1979. Sigurður var sæmdur gullmerki félagsins fyrir vel unnin störf í þágu Víkings árið 1973.

Knattspyrnufélagið Víkingur þakkar Sigurði samfylgdina og hans miklu og óeigingjörnu störf í þágu félagsins. Eftirlifandi eiginkonu Sigurðar, börnum hans og fjölskyldu sendum við einlægar samúðarkveðjur. 

Hvíl í friði kæri félagi.