Sigurður: Þær stóðu sig afbragðsvel
23.7.2010
Keflavík
sigraði HK/Víking, 2:1, í hörkuleik í 1. deild kvenna á
Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Þetta var lykilleikur í
baráttunni um sæti í úrslitakeppninni og nú er ljóst að það verða
Keflavík og Þróttur sem komast áfram úr riðlinum en HK/Víkingur getur
þó vel við unað í góðri stöðu í þriðja sætinu. Það var Ingibjörg
Sigvaldadóttir sem skoraði mark liðsins í kvöld.
Staðan í A-riðli 1. deildar kvenna.
"Mínar
dömur stóðu sig afbragðsvel í kvöld. Þær veittu sterku liði Keflavíkur
verðuga keppni og við hefðum hæglega getað fengið stig útúr þessum
leik," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
Leikið var á
nýendurgerðum Sparisjóðsvelli Keflvíkinga við hinar bestu aðstæður og
HK/Víkingur byrjaði leikinn af krafti. Keflvíkingar skoruðu hinsvegar
úr sinni fyrstu alvöru sókn á 8. mínútu þegar fyrrum landsliðskonan
Nína Ósk Kristinsdóttir nýtti sér hik á vörn HK/Víkings og skoraði ein
gegn Guðrúnu Önnu í markinu, 1:0.
Mikil barátta var frá fyrstu
mínútu og þegar leið á hálfleikinn brá fyrir ágætum spilköflum.
HK/Víkingur náði smám saman yfirhöndinni á miðjunni þar sem hin 15 ára
gamla Glódís Perla Viggósdóttir skyggði algjörlega á nýja serbneska
landsliðskonu í liði Keflvíkinga.
Guðrún Hermannsdóttir fékk
besta færið til að jafna eftir rúmlega hálftíma leik en skaut rétt
framhjá. Á síðustu andartökum fyrri hálfleiks átti HK/Víkingur síðan
flotta sókn þar sem Tinna Óðinsdóttir renndi boltanum inní vítateiginn
hægra megin á Ingibjörgu Sigvaldadóttur sem var komin ein gegn
markverðinum og skoraði af öryggi, 1:1.
Seinni hálfleikurinn var
síðan í járnum allan tímann. Gott spil var í liði HK/Víkings sem átti
margar fínar sóknir en vantaði herslumuninn til að skora. Guðrún og
Glódís voru næstar því en báðar áttu þær skot í hliðarnetið úr
vítateignum.
Þegar 13 mínútur voru eftir af leiknum skoraði Nína
sigurmark Keflvíkinga með glæsilegu skoti frá vítateig, óverjandi fyrir
Guðrúnu Önnu sem átti afar traustan leik í markinu hjá HK/Víkingi.
Í
uppbótartíma mátti ekki muna miklu að HK/Víkingi tækist að jafna en
eftir góða sókn og fyrirgjöf frá hægri skaut Tinna framhjá af markteig.
En
þrátt fyrir ósigur var þetta virkilega fín frammistaða hjá
HK/Víkingsstúlkum sem voru inni í leiknum frá upphafi til enda og léku
líklega sinn besta leik í sumar.
Lið HK/Víkings var þannig skipað:
Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir
Varnarmenn:
Arndís Rós Stefánsdóttir (Berglind Anna Víðisdóttir 77.)
Ingibjörg Björnsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir
Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir (Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir 77.)
Glódís Perla Viggósdóttir
Valgerður Tryggvadóttir
Framherjar:
Ingibjörg Sigvaldadóttir (Anna Daníelsdóttir 77.)
Guðrún Hermannsdóttir
Tinna Óðinsdóttir
Varamaður:
Margrét Ýr Björnsdóttir
Meiddar og utan hóps:
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir
Hildigunnur Sól Eldjárn
Hjördís H. Sigurðardóttir
Inga Lára Óladóttir
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Kristín Ósk Óskarsdóttir
Lovísa Þorsteinsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir
Sólrún Sigvaldadóttir
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)
* Fimmtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.
* Heiður lék
sinn 120. leik fyrir meistaraflokk HK/Víkings og er nú jöfn
Láru Hafliðadóttur í 2.-3. sæti yfir þær leikjahæstu frá upphafi. Sjá
nánar: Tölfræði mfl.kv.
*
Þetta var 14. mótsleikur HK/Víkings og Keflavíkur í meistaraflokki
kvenna. HK/Víkingur hefur unnið 4 leiki, Keflavík 7, og 3 hafa endað
með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.
* Næsti leikur er gegn Þrótti R. á Valbjarnarvelli laugardaginn 7. ágúst kl. 14. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.
Mynd: Ingibjörg Sigvaldadóttir skoraði í Keflavík.
Frétt af heimasíðu HK