Víkingar á toppnum
23.7.2010

Það var boðið upp á sannkallaða veislu í Víkinni í gærkvöldi þegar Fjölnismenn komu í heimsókn. Eftir bráðfjörugan fyrri hálfleik leiddu gestirnir 1:2. Það var Dofri Snorrason (mynd) sem kom Víkingum í 1:0 en Fjölnismenn svöruðu í tvígang fyrir leikhlé. Gamli refurinn Helgi Sigurðsson jafnaði metin á 65. mínútu en það var skammvinn sæla því Fjölnir komst í 2:3 á 76. mínútu. Leifur Garðarsson, þjálfari Víkings, brást við með tvöfaldri skiptingu þegar hann setti Pétur Örn Svansson og Jakob Spangsberg inn á. Þessi breyting virkaði vel því hinn hái en knái Tómas Guðmundsson jafnaði metin 3:3 á 82. mínútu. Víkingar létu ekki þar við sitja því Jakob Spangsberg skoraði 4:3 á 86. mínútu og Pétur Örn Svansson innsiglaði sigurinn á 93. mínútu. Það voru því sigurreifir Víkingar sem gengu af velli fyrir framan fjölmarga áhorfendur sem stóðu sig vel og studdu liðið þegar mest þurfti á að halda.
Með sigrinum sitja Víkingar einir á toppi deildarinnar með 28 stig og mæta Leikni í næstu umferð. Leiknir hefur 25 stig en eiga leik til góða gegn Þór á Akureyri og fer hann fram laugardaginn 24. júlí.
Nánari stöðu og leikjadagskrá má finna á vef 1. deildar hjá
KSÍ.