Góður árangur hjá 4. flokki kvenna á Gothia Cup
27.7.2010
Fjórði flokkur kvenna náði góðum árangri á Gothia Cup í Gautaborg dagana 17.-24. júli. Í riðlakeppninni ,þar sem 92 lið kepptu í 23 riðlum, og var flokkurinn með næstbesta árangur í þessum 23 riðlum. Liðið sigraði í öllum leikjum sínum með markatölurnar 21-1 og fór A-úrslit. Tvö efstu liðin í riðlum léiku í A-úrslitakeppni.
Víkingsliðið lauk þátttöku sinni með því að falla út í 16 leikja úrslitum og var það besti árangur íslenskra liða á mótinu. Alls tóku 35 íslensk lið þátt í Gothia Cup. Iðkendur voru þar alls 35 þúsund keppendur tóku þátt, þar af rúmlega 600 frá Íslandi.
Eftirfarandi leikmenn skoruðu mörk Víkinga í Gautaborg:
Saga 10
Hugrún 6
Steinunn 5
Unnur Svala 2
Víkingsstelpurnar voru Víkingi til sóma innan sem utan vallar og gekk ferðin vel í alla staði.