lesa frétt

Landsliðsþjálfarinn Óli Jóh. gestaþjálfari hjá 3. flokki karla

29.7.2010
Strákarnir í 3. flokki í fótbolta fengu sjálfan landsliðsþjálfarann í knattspyrnu karla, Ólaf Jóhannesson, í heimsókn í Víkina í dag til að stýra lokaæfingu fyrir ferð á Norway Cup í Osló núna á laugardaginn um verslunarmannahelgina. Landsliðsþjálfarinn messaði yfir strákunum í upphafi æfingarinnar og lét þá síðan taka á því svo um munaði.

Heimsókn Óla Jóh. á rætur að rekja til samtals þeirra Gunnars Arnar Gunnarssonar, þjálfara 3. flokks, á dómaranámskeiði í vor. Æfingin var krydd í tilveruna hjá strákunum í aðdraganda keppnisferðar til Noregs og lokauppgjörs í Íslandsmótinu hér heima. A-liðið er þar að berjast á toppnum og ætlar að sjálfsögðu að selja sig dýrt á lokasprettinum.

Nánar er fjallað um æfingu landsliðsþjálfararns á bloggsíðu 3. flokks og þar er líka að finna myndir  af vettvangi. Á sömu bloggsíðu munu birtast fregnir í næstu viku af gengi Víkinga á Norway Cup og af tíðarfari yfirleitt í Norge.

Norway Cup er gríðarstórt mót og það fyrsta sinnar tegundar í heiminum, fyrst haldið árið 1972. Gautaborgarmótið Gothia Cup í fótbolta er í raun ljósrit af Norway Cup og mótshaldarar víðs vegar annars staðar í heiminum hafa Norway Cup að fyrirmynd.

Á Norway Cup 2010  verða um 30.000 iðkendur á aldrinum 12-19 ára frá 57 löndum í 1.380 sjö og ellefu manna liðum! Víkingar verða þarna í fyrsta sinn þátttakendur (að því er við best vitum!) og senda tvö lið drengja úr 3. flokki. Auk þess fara héðan lið frá Aftureldingu, Gróttu og Sindra á Höfn í Hornafirði á mótið í Noregi.

Spilað er í riðlum sunnudag, mánudag og þriðjudag 1.-3. ágúst. Tvö efstu lið í riðllum keppa síðan með útsláttarfyrirkomulagi í A-úrslitum á miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Lliðin í þriðja sæti riðla keppa á sama hátt í B-úrslitum.

Lokaúrslitaleikir mótsins verða laugardaginn 7. ágúst og þá verða sigurvegar krýndir. Víkingsstrákarnir koma heim sunnudaginn 8. ágúst.

Lykke til Vikingar! 



Óli Jóh. messar í Víkinni í dag.