KR kallar Dofra heim
30.7.2010
KR hefur ákveðið að kalla Dofra Snorrason heim en leikmaðurinn hefur verið í láni hjá okkur Víkingum frá í vor. Þetta eru slæm tíðindi enda hefur Dofri staðið sig feikilega vel og reynst góður félagi.
Dofri lék alls 13 leiki og skoraði 5 mörk í 1. deildinni en auk þess lék hann 3 leiki og skoraði 2 mörk í VISA bikarnum.
Um leið og við þökkum Dofra fyrir veruna í Víkinni óskum við honum alls hins besta hjá KR.