Arnarskálin - golfmót Víkings á Hellu
4.8.2010

Golfmót Víkings, Arnarskálin, verður á Strandavelli á Hellu laugardaginn 14. ágúst og þar verður mikið um dýrðir að vanda. Arnarskálin sjálf er að sjálfsögðu gripurinn sem upp er keppt en vegleg verðlaun verða líka veitt fyrir 2. og 3. sætið. Á meðfylgjandi blaði eru frekari upplýsingar um mótshald og skráningu.