Óþolandi að bjóða meistaraflokki uppá svona hörmung
7.8.2010
7. ágúst 2010
HK/Víkingur sótti Þrótt heim í næstsíðasta leik sínum í 1. deild kvenna í dag en leikurinn fór fram á Valbjarnarvellinum í Laugardal. Þróttarkonur, sem hafa unnið alla sína leiki í sumar, unnu stórsigur, 8:0, en staðan var þó 1:0 framí seinni hálfleikinn. Afar umdeilt mark reyndist þá vendipunktur.
Þá var Guðrún Hermannsdóttir rekin af velli í seinni hálfleik en Guðrún Anna Atladóttir varði vítaspyrnu í þeim fyrri.
Úrslitin breyta þó engu um það að HK/Víkingur endar í þriðja sæti A-riðilsins af nokkru öryggi, á eftir Þrótti og Keflavík sem fara í úrslitakeppnina um sæti í Pepsideildinni.
Staðan í A-riðli 1. deildar.
Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálfleik þar sem bæði lið léku vel, Þróttur átti þó oftar efnilegar sóknarlotur en flestar stoppuðu þær á Sólveigu Þórarinsdóttur miðverði sem átti sannkallaðan stórleik í fyrri hálfleik. Hún og HK/Víkingur kom þó engum vörnum við þegar kantmaður Þróttar stakk sér inn fyrir vörnina utan af kantinum, tók þar við gríðarlega hnitmiðaðri stungusendingu og skoraði framhjá Guðrúnu Önnu Atladóttur markverði sem átti ekki síðri leik en Sólveig í þessum hálfleik, 1:0.
HK/Víkingur var fyllilega inni í leiknum í fyrri hálfleik, til dæmis komst Guðrún Hermannsdóttir ein inn fyrir vörnina hjá Þrótti en skaut yfir úr uppglögðu færi. Bakvörður Þróttar átti í verulegum erfiðleikum með hraða Guðrúnar.
Að sama skapi átti vörnin hjá Þrótti í erfileikum með Hugrúnu Friðriksdóttur og sýndist mönnum að öruggari dómari en sá sem dæmdi þennan leik hefði dæmt vítaspyrnu er hún féll í teignum eftir bakhrindingu þegar hún var við það að sleppa í gegn.
HK/Víkingur var hins vegar líka stálheppið að fá ekki á sig fleiri mörk í hálfleiknum þar sem boltinn dansaði í tvígang í markteignum án þess að vörninni gengi að hreinsa. Hurð skall þó næst hælum er Þróttur fékk vítaspyrnu, heldur af ódýrara taginu, en Guðrún Anna gerði sér lítið fyrir og varði örugglega.
Ótrúleg atburðarás í öðru marki Þróttar
Í hálfleik varð að gera breytingu á vörninni hjá HK/Víkingi er Arndís Rós Stefánsdóttir þurfti að fara af velli og kom því nokkuð óöryggi í vörnina í upphafi síðari hálfleiks. Eftir fimm mínútna leik gerðist síðan atvik sem gerbreytti leiknum. Guðrún Hermannsdóttir sem komin var í stöðu bakvarðar fylgdi þá langri sendingu Þróttar eftir aftur fyrir endamörk og hélt sóknarmanni Þróttar frá boltanum sem þannig rúllaði aftur fyrir endamörk og stöðvaðist þar.
Guðrún og sóknarmaðurinn standandi yfir boltanum hættu báðar enda boltinn utan vallar en sóknarmaðurinn áttaði sig þá á því að dómarinn hafði ekki dæmt markspyrnu þar sem illa staðsettur aðstoðardómari á línunni fjær hafði ekki gefið merki um slíka spyrnu. Dró sóknarmaðurinn því boltann til sín og spyrnti honum fyrir markið, Guðrúnu Önnu markverði að óvörum sem var lögð af stað að ná í annan bolta, þar spyrnti Þróttari boltanum í netið og dómarinn dæmdi mark!
Mótmæli Guðrúnar Hermannsdóttur og furða yfir framgangi dómarans leiddi til þess að hún fékk gult spjald, sem átti eftir að verða enn afdrifaríkara.
Leikmenn HK/Víkings voru svo enn með hugann við þetta atvik þegar leikurinn hófst að nýju en slíkt einbeitingarleysi dugir ekki gegn jafn verðugum andstæðingi og Þrótti sem skoraði nánast í næstu sókn og staðan skyndilega breytt úr nokkuð jöfnum leik 1:0 í 3:0.
Óhætt er að segja að leikmenn HK/Víkings hafi ekki orðið neitt ágengt það sem eftir lifði leiks í sóknarleik heldur þvert á móti elfdust Þróttarar í sínum sóknaraðgerðum þannig að mörkin fóru að tínast inn eitt af öðru. Endanlega lögðu leikmenn svo árar í bát þegar Guðrún Hermannsdóttir fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir síðbúna tæklingu. Komu mörkin þannig á færibandi eftir það sem leiddu til stórsigurs Þróttar, 8:0.
Haft var að auki á orði eftir leikinn að það væri nokkuð ljóst að því fylgdi engin gæfa fyrir HK/Víking að spila við Þrótt helgina eftir Verzlunarmannahelgi því nákvæmlega sömu úrslit urðu fyrir ári síðan þegar liðið tapaði eina leiknum sínum í riðlinum það árið með þeirri markatölu á Valbjarnarvelli á móti Þrótti.
Níu gul og þrjú rauð hjá þessum dómara
Óhjákvæmilegt er að geta um þátt dómara leiksins. Þessi dómari hefur nú dæmt tvo leiki liðsins í sumar. Í þeim leikjum hafa þrír leikmenn verið reknir af velli, og leikmönnum og þjálfara sýnt gula spjaldið 9 sinnum, þar af 7 sinnum fyrir mótmæli. Í öllum öðrum leikjum Íslandsmótsins samtals hefur engum leikmanni verið vikið af velli og eitt gult spjald verið skráð.
Lesendum er eftirlátið að draga sínar ályktanir en sem dæmi skal þess getið að gult spjald var veitt í leiknum á móti Þrótti þegar leikmaður sem varði á sér andlitið með opnum lófa og fékk á sig dæmda hendi spurði dómarann „átti ég bara að fá hann í fésið“.
Mikil óákveðni einkenndi dómgæsluna og mjög umdeilanlegar ákvarðanir sem þó voru á stundum teknar að yfirveguðu ráði. Besta dæmið um slíkt var þegar sóknarmaður Þróttar renndi sér með takkana á undan í samstuð við Guðrúnu Önnu í markinu sem fékk skósólann í andlitið, tilvik sem var annað hvort óhapp sem ekki átti að dæma á eða rautt spjald fyrir stórhættulegan háskaleik. Sóknarmaðurinn fékk gult spjald eftir að stumrað hafði verið yfir Guðrúnu Önnu góða stund enda lá hún lengi óvíg eftir.
Styrkur liðs þarf að vera mikill til þess að þola mótlæti eins og það sem HK/Víkingur mætti þennan daginn, sérstaklega á móti svo góðu liði sem Þróttar sem nú býr sig af kappi undir úrslitakeppnina um sæti í úrvaldsdeildinni, Þróttararnir voru alveg nógu snúnir viðfangs fyrir og fór því svo að mörkin urðu mörg.
Slæmar ákvarðarnir höfðu veruleg áhrif á leikinn
"Leikurinn var í jafnvægi frá byrjun og fram í seinni hálfleik en Þróttarar keyrðu yfir okkur í lokin og voru vel að sigrinum komnir. Ég vil óska Þrótti góðs gengis í úrslitakeppninni," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
Hann var mjög óhress með dómgæsluna. "Já, maður getur nú ekki orða bundist með dómara dagsins. Það er óþolandi að bjóða meistaraflokki upp á svona hörmung. Það voru fjölmargar slæmar ákvarðanir hjá dómurum leiksins sem komu okkar illa og höfðu veruleg áhrif á leikinn. Hann gefur Þrótti gult spjald snemma leiks fyrir tveggja fóta tæklingu í höfuðið á markmanni okkar, hrein árás og því hefði það átt að vera rautt spjald.
Aðstoðardómarinn hefur ekki hlaupagetu til að sinna sínu starfi og það er alveg ótrúlegt að vera með hlunka á línunni sem komast ekki hálfan völl án þess að standa á öndinni. KSÍ hlýtur að hafa meiri metnað í dómaramálum en þetta," sagði Sigurður ómyrkur í máli.
Lið HK/Víkings var þannig skipað:
Markvörður:
Guðrún Anna Atladóttir
Varnarmenn:
Arndís Rós Stefánsdóttir (Kristín Ósk Óskarsdóttir 46.)
Ingibjörg Björnsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Hjördís H. Sigurðardóttir
Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir
Tinna Óðinsdóttir
Valgerður Tryggvadóttir
Framherjar:
Hildigunnur Sól Eldjárn
Guðrún Hermannsdóttir
Hugrún Friðriksdóttir (Karen Ósk Þórisdóttir 50.)
Varamenn:
Margrét Ýr Björnsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir
Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Berglind Anna Víðisdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Inga Lára Óladóttir
Ingibjörg Sigvaldadóttir
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Lovísa Þorsteinsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir
Sólrún Sigvaldadóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir (3.fl.)
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)
* Þrettán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.
* Heiður er orðin annarleikjahæsti leikmaður meistaraflokks kvenna frá upphafi með 121 leik. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
* Þetta var 29. mótsleikur HK/Víkings og Þróttar R. í meistaraflokki. HK hefur unnið 13 leiki og Þróttur 14, en 2 hafa endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.
* Næsti leikur og sá síðasti á tímabilinu er gegn Tindastóli/Neista á Sauðárkróki föstudaginn 20. ágúst kl. 19. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.
Mynd 1: Hildigunnur Sól Eldjárn og Tinna Óðinsdóttir í baráttunni.
Mynd 2: Hjördís Sigurðardóttir tekur innkast og Sólveig Þórarinsdóttir fylgist með.
Mynd 3: Sigurður þjálfari og Sólveig sjúkraþjálfari/leikmaður stumra yfir Guðrúnu Önnu markverði sem var tækluð illa í andlitið af sóknarmanni Þróttar.

Frétt af heimasíðu HK