lesa frétt

2. fl.kvenna: Ingibjörg jafnaði á Selfossi

9.8.2010

HK/Víkingur gerði í dag jafntefli við Selfyssinga, 1:1, á Íslandsmóti 2. flokks kvenna austur á Selfossi, í fínum leik á erfiðum útivelli.

Selfyssingar skoruðu snemma leiks og sóttu meira lengi vel. HK/Víkingsstúlkur stóðu hinsvegar vörnina vel og tóku síðan leikinn í sínar hendur síðasta korterið. Varnarjaxlinn Ingibjörg Björnsdóttir fór þá í framlínuna með góðum árangri því hún jafnaði metin, 1:1, á 80. mínútu.

"Þetta var flott frammistaða í erfiðum leik. Það lá mikið á okkur lengst af en við áttum góðan endasprett. Nokkrir leikmanna liðsins léku sinn annan leik á tveimur dögum og sýndu frábært hugarfar. Þá varði Margrét nokkrum sinnum vel í markinu," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

Liðið var þannig skipað:
Margrét Ýr Björnsdóttir, Sóley Þrastardóttir, Arndís Rós Stefánsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Ellen Torfadóttir (Sigurrós Halldórsdóttir), Karen Ósk Þórisdóttir, Hildigunnur Sól Eldjárn, Guðrún Hermannsdóttir, Telma Viggósdóttir, Steinunn Sveinsdóttir, (Svava Rut Luckas), Telma Dögg Óskarsdóttir (Hjördís Ásta Guðmundsdóttir)

Það er spilað þétt þessa dagana því strax annað kvöld, mánudagskvöld, fara stúlkurnar uppá Akranes og leika þar við ÍA. Nóg er eftir af mótinu því HK/Víkingur á enn eftir að spila sjö leiki sem fram eiga að fara á næstu fjórum vikum.

Staðan í B-deildinni.

Mynd: Ingibjörg Björnsdóttir jafnaði metin.

Frétt af heimsíðu HK