lesa frétt

Minning

10.8.2010

Í síðustu viku lést Gunnar Már Pétursson á sínu 91. aldursári.  Hann var einn farsælasti forustumaður Knattspyrnufélagins Víkings, en Gunnar Már gekk fyrir tilviljun og sökum óveðurs í skíðaferð sem endaði með óvæntri næturgistingu í Skíðaskála Víkings í Sleggjubeinsskarði árið 1946 eða 1947 til liðs við Víking. Fyrir í skálanum voru margir Víkingar og var Gunnari og öðrum sem þessa nótt „Guðuðu á gluggann“ þannig tekið að Gunnar Már gekk til liðs við Víking.  Snemma voru honum falin ýmis trúnaðarstörf fyrir félagið og árið 1952 var hann fyrst kjörinn formaður félagsins og gegndi hann því starfi nær óslitið til ársins 1973 eða í rúm tuttugu ár. Eitt af fyrstu verkefnum sem hann glímdi við ásamt þeim Gunnlaugi Lárussyni og Árna Árnasyni var að hasla félaginu nýjan samverustað í Bústaða- og Smáíbúðahverfinu. Hér var ekki um auðvelt mál að ræða, mörgum eldri Víkingum sárnaði að yfirgefa miðbæinn, og voru skiptar skoðanir um þessar gerðir. Yngri Víkingar í dag gera sér varla grein fyrir hversu tæpt var á að félagið legðist niður á þessum tímapunkti. Fjármögnun til þessa verks var með ólíkindum og má geta þess að þeir ásamt nokkrum fórnfúsum Víkingum gengu í hús í hverfinu mánaðarleg og innheimtu „tíund“ eð kr. 10. pr. þau heimili sem vildu leggja málefninu lið. Sá er þessa línur ritar var það gæfusamur að setjast í stjórnir félagsins undir forustu Gunnars Más og af honum lærði ég undirstöðu í félagsmálastörfum.  Gunnar Már var gæddur sérstökum eiginleikum til að fá menn til samvinnu og léttur og glitrandi húmor hans hjó iðulega á hnúta ef útlit var fyrir að hnútar væru að herðast. Hvar sem Gunnar Már kom fram í nafni Víkings var hlustað á hann og hans málaflutning af athygli , og lagni hans og framtíðarsýn var ævinlega björt og trúverðug. Eftir að Gunnar Már dró sig til hlés við annasöm félagsmálastörf fyrir Víking fylgdist hann vel með öllum málefnum félagsins og var alltaf reiðubúinn til ráðgjafar ef eftir var leitað. Gunnar Már var kjörinn Heiðursfélagi Víkings, auk þess sem hann hlaut annan sóma af sínum störfum fyrir Víking. Við Víkingar þökkum fyrir þá samveru og nálægð sem þessi fallni öðlingur sýndi ávallt sínu kæra félagi.

Útförin fer fram í Neskirkju miðvikudaginn 11. ágúst kl. 15:00

Knattspyrnufélagið Víkingur

Anton Örn Kærnested