2. fl.kvenna: Erfitt á Akranesi
10.8.2010
Stúlkurnar
í 2. flokki léku í gærkvöld annan leik sinn á tveimur dögum á
Íslandsmótinu þegar þær brugðu sér uppá Akranes og mættu ÍA.
Skagastúlkur reyndust sterkari og sigruðu 4:1.
Leikurinn var
erfiður gegn góðu liði ÍA sem sótti linnulítið í fyrri hálfleik og
uppskar eitt mark eftir 20 mínútna leik. Staðan í hálfleik var 1:0 og
HK/Víkingur náði sjaldan að ógna marki heimastúlkna.
Eftir að ÍA
komst í 2:0 snemma í seinni hálfleik var breytt um leikaðferð, lið
HK/Víkings færði sig framar á völlinn og það skilaði strax árangri.
Rakel Lind Ragnarsdóttir minnkaði muninn í 2:1 og allt gat gerst í
opnum leik. En þegar tæpar 20 mínútur voru eftir náði ÍA að komast í
3:1 og bætti síðan einu marki við áður en yfir lauk.
"Þetta er
búin að vera erfið helgi og álagið á liðið mikið. Fjórir leikmenn léku
sinn þriðja leik á þremur dögum og aðrir spiluðu annan daginn í röð.
Samt var þetta fín frammistaða og við áttum ágætar tilraunir til að
jafna metin í seinni hálfleiknum," sagði Sigurður Víðisson þjálfari
HK/Víkings.
Liðið var þannig skipað:
Margrét Ýr Björnsdóttir
- Ellen Björg Torfadóttir (Hildigunnur Sól Eldjárn 59.), Lovísa
Þorsteinsdóttir, Karen Ósk Þórisdóttir, Sóley Rut Þrastardóttir,
Steinunn Sveinsdóttir (Guðrún Hermannsdóttir 46.), Telma Dögg
Óskarsdóttir, Brynja Bjarnadóttir, Ólafía Daðadóttir (Ingibjörg
Björnsdóttir 59.), Rakel Lind Ragnarsdóttir, Diljá Helgadóttir.
HK/Víkingsstúlkur eiga enn eftir sex leiki á Íslandsmótinu og þær fá Selfoss í heimsókn næsta mánudag.
Mynd: Rakel Lind Ragnarsdóttir skoraði gegn ÍA.
Frétt af heimasíðu HK