2. fl. kvenna: Aftur skorar Ingibjörg gegn Selfossi
17.8.2010
HK/Víkingur lék sinn annan leik gegn Selfossi á stuttum tíma á Íslandsmóti 2. flokk kvenna í kvöld. Síðast skildu liðin jöfn en nú landaði HK/Víkingur sigri í Fagralundi eftir mikinn barning, 4:3.
Það byrjaði ekki vænlega fyrir HK/Víking þar sem leikurinn var fárra sekúndna gamall þegar mislukkuð spyrna varnarmanns skilaði sóknarmanni Selfoss á auðan sjó þannig að Karen Ósk Þórisdóttir sem tók sér stöðu milli stanganna þetta skiptið hafði fárra kosta völ. Heimamenn voru þó ekki lengi að jafna því Guðrún Hermannsdóttir slapp ein í gegn eftir góða stungusendingu og skoraði af yfirvegun, 1:1.
Skömmu síðar fékk Guðrún annað tækifæri en boltinn small í þverslánni í það skiptið. HK/Víkingur fékk fleiri færi til að skora en inn vildi boltinn ekki um sinn en það gerði hann hins vegar hinum meginn þegar hann hrökk í netið eftir atgang í teignum eftir hornspyrnu.
Enn hélt HK/Víkingur áfram að skapa sér efnileg færi en það besta kom þegar boltinn small í annað skiptið í slánni eftir hörkuskot Sigurrósar Halldórsdóttur. Inn vildi boltinn þó ekki oftar í þessum hálfleik þannig að gestirnir frá Selfossi leiddu 1:2 í hálfleik.
Sá seinni var varla byrjaður þegar Guðrún lagaði stöðuna á ný, fékk úrvals stungusendingu frá Sigurrós í gegnum vörnina miðja og skoraði af yfirvegun, 2:2. Enn brá svo við að gestirnir svöruðu og aftur eftir hornspyrnu, boltinn féll fyrir fætur sóknarmanns á markteig sem átti auðveldan leik með að skora og heimaliðið enn lent undir 2:3.
Leið nú langt á leikinn sem var heldur að dofna yfir, óttalegur barningur þar sem boltinn var kýldur fram og til baka milli liða og lítið um efnilegar sóknir. Virtist leikur HK/Víkings nokkuð vera að fjara út þegar Sigurður Víðisson þjálfari greip aftur til sama herbragðs eins og á Selfossi, fækkaði í vörninni og setti miðvörðinn Ingibjörgu Björnsdóttur í sóknina. Og aftur gekk herbragðið upp, Ingibjörg fékk tvö dauðafæri á örskömmum tíma og aftur nýtti hún annað færið og jafnaði leikinn 3:3.
Með það fór hún í vörnina aftur en markið sneri leiknum loks HK/Víkingi í vil því það kveikti í leikmönnum HK/Víkings sem náðu um stund upp ágætu samspili sem endaði með því að Hildigunnur S. Eldjárn komst á auðan sjó og tryggði liðinu forystu í fyrsta sinn í leiknum, 4:3. Lokamínútur leiksins lék líðið svo af skynsemi og landaði því nokkuð verðskulduðum en torsóttum sigri.
"Þetta var fín frammistaða í dag, eftir erfiða byrjun þá gafst liðið ekki upp og sýndi mikla þrautseigju. Það hafa margir leikmenn liðsins bætt sig mikið í sumar og hugarfarið er þar stór þáttur. Karen smellti sér í markið og kláraði það með sóma," sagði Sigurður þjálfari eftir leikinn.
Lið HK/Víkings:
Mark: Karen Ósk Þórisdóttir.
Vörn: Sóley Þrastardóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Lovísa Þorsteinsdóttir, Berglind Anna Víðisdóttir.
Miðja: Telma Óskarsdóttir, Arndís Rún Stefánsdóttir, Hildigunnur Sól Eldjárn.
Sókn: Guðrún Hermannsdóttir Telma Smáradóttir, Diljá Helgadóttir (Sigurrós Halldórsdóttir 31., Anna Margrét Benediktsdóttir 61.)
Mynd 1. Guðrún Hermannsdóttir skoraði í tvígang.
Mynd 2. Hildigunnur S. Eldjárn tryggði sigurinn.
Mynd 3. Thelma Smáradóttir lék á vinstri kantinum í þessum leik.
Mynd 4. Sigurrós Halldórsdóttir sem alla jafna leikur sem bakvörður átti skínandi góðan leik í hlutverki framherja, ógnaði vel og skapaði ágæt færi fyrir samherja sína.
Mynd 5. Diljá Helgadóttir átti líka ágæta spretti.
Frétt af heimasíðu HK