Tombóla haldin til styrktar knattspyrnudeildar Víkings!
19.8.2010

Það er gaman að greina frá því að félagarnir Breki Örvarsson og
bræðurnir Einar Ari og Ólafur Breki Guðnasynir, sem allir eru leikmenn í
7. flokki, héldu tombólu til styrktar Knattspyrnudeildar Víkings.
Strákarnir komu og afhendu Birni Einarssyni formanni knattspyrnudeildar
1813 krónur í kassa sem þeir höfðu safnað. Þegar þeir voru spurðir um
hvað þeir vildu að Víkingur gerði við þessa peninga sögðu þeir „kaupa
nokkra kalla í meistaraflokkinn“. Frábært framtak hjá þessum ungu
drengjum og munu peningarnir örugglega koma að góðum notum við að
styrkja leikmannahóp meistaraflokks fyrir komandi átök.