lesa frétt

Kynningarfundur almenningsíþróttadeildar

20.8.2010
Þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 20:00 verður haldinn kynningarfundur í Víkinni þar sem
starfsemi almenningsíþróttadeildarinnar verður kynnt. Áhugasamir eru hvattir til þess að
mæta í Víkina og kynna sér þær nýjungar sem almenningsíþróttadeildin mun bjóða upp á
í vetur. Auk skokkhópsins verður í boði að taka þátt í stafgöngu, útivistarhóp og styrktarþjálfun í tækjasal. Þjálfari verður Bjarney Gunnarsdóttir, íþróttafræðingur.