Naumt tap í haustkulda á Sauðárkróki
20.8.2010
HK/Víkingur
lauk í kvöld keppni í 1. deild kvenna á Íslandsmótinu þetta árið með
því að spila við Tindastól/Neista norður á Sauðárkróki. Norðanstúlkur
höfðu betur, 2:1, en það var Sólveig Þórarinsdóttir sem skoraði mark
HK/Víkings og jafnaði þá 1:1 snemma í seinni hálfleiknum.
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir spilaði sinn 100. leik fyrir meistaraflokk HK/Víkings í kvöld.
Þriðja
sætið í A-riðli var þegar í höfn hjá HK/Víkingi fyrir leikinn og liðið
er sex stigum á undan Tindastóli/Neista þrátt fyrir þessi úrslit.
Staðan í riðlinum.
Það
var hrollkalt á Sauðárkróki og nokkur vindur. Heimastúlkur léku undan
honum í fyrri hálfleik og sóttu látlaust án þess að skapa sér teljandi
færi framan af leik. Vörn HK/Víkings hélt vel og baráttan var góð.
Tindastóll/Neisti náði að skora uppúr hornspyrnu og staðan var 1:0 í
hálfleik.
Seinni hálfleikur hófst með stórsókn HK/Víkings.
Sólveig skoraði með þrumuskoti eftir hornspyrnu og jafnaði, 1:1, á 59.
mínútu. Heimaliðið skoraði þvert gegn gangi leiksins tíu mínútum síðar
og það reyndist sigurmarkið í leiknum, 2:1.
"Við fórum úr
sumarveðri í borginni í haustkulda á Króknum og það setti líka svip á
leikinn að sterkur vindur stóð á annað markið. Eftir góða frammistöðu í
fyrri hálfleik þá áttum við dapran leik í þeim seinni. Erfiðlega gekk
að halda boltanum innan liðsins og að skapa færi. Við vorum með
yfirhöndina þegar við jöfnuðum og þá vantaði bara að reka smiðshöggið á
verkið. Eftir að heimadömur komust yfir aftur þá fækkuðum við í
vörninni, leikurinn opnaðist við það en við náðum ekki að bæta við,"
sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
Lið HK/Víkings var þannig skipað:
Markvörður:
Karen Ósk Þórisdóttir
Varnarmenn:
Berglind Anna Víðisdóttir (Lovísa Þorsteinsdóttir 46.)
Ingibjörg Björnsdóttir
Sólveig Þórarinsdóttir
Eva Eðvaldsdóttir
Tengiliðir:
Heiður Loftsdóttir
Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir
Valgerður Tryggvadóttir
Framherjar:
Hildigunnur Sól Eldjárn (Sólrún Sigvaldadóttir 82.)
Kristín Ósk Óskarsdóttir
Hjördís H. Sigurðardóttir (Guðrún Anna Atladóttir 82.)
Meiddar og utan hóps:
Anna Daníelsdóttir
Arndís Rós Stefánsdóttir
Elísabeth Ásgeirsdóttir
Guðrún Hermannsdóttir (leikbann)
Inga Lára Óladóttir
Ingibjörg Sigvaldadóttir
Kristín Lilja Friðriksdóttir
Margrét Ýr Björnsdóttir
María Rún Gunnlaugsdóttir
Mjöll Einarsdóttir
Sif Ólafsdóttir
Tinna Óðinsdóttir
Anna Margrét Benediktsdóttir (3.fl.)
Diljá Helgadóttir (3.fl.)
Glódís Perla Viggósdóttir (3.fl.)
Hugrún Friðriksdóttir (3.fl.)
Natalía Reynisdóttir (3.fl.)
Rakel Lind Ragnarsdóttir (3.fl.)
Sigurrós Halldórsdóttir (3.fl.)
Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir (3.fl.)
*
Fjórtán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Ingibjörg Björnsdóttir
var eini leikmaðurinn sem spilaði alla 22 mótsleikina á árinu og Heiður
kom næst með 20 leiki. Sjá nánar: Leikmenn meistaraflokks kvenna 2010.
* Sigurrós lék sinn 100. meistaraflokksleik og er sú fimmta frá upphafi sem nær þeim leikjafjölda. Sjá nánar: Tölfræði mfl.kv.
*
Þetta var 3. mótsleikur HK/Víkings og Tindastóls/Neista í
meistaraflokki. HK/Víkingur hefur unnið einn leik og Tindastóll/Neisti
tvo. Sjá nánar: Mótherjar.
* Hér má sjá yfirlit yfir alla 22 mótsleiki ársins: Leikir mfl.kv. 2010.
Mynd: Sólveig Þórarinsdóttir skoraði markið.
Frétt af heimasíðu HK