Boltaskóli Víkings fyrir börn fædd árið 2005.
30.8.2010
BOLTASKÓLI VÍKINGS FYRIR KRAKKA FÆDD ÁRIÐ 2005
Boltaskólinn er framhald af íþróttaskóla barnanna.
Um er að ræða 10 vikna námskeið sem fram fer á laugardögum í Víkinni kl. 9:20-10:10.
Fyrsti tíminn verður laugardaginn 2. október.
Í boltaskólanum er áhersla er lögð á að auka hreyfifærni og samhæfingu með ýmsum boltaæfingum.
Kennarar
skólans verða Sigrún Brynjólfsdóttir kennari og handboltaþjálfari,
Lisbeth Borg leikskólakennari og Marteinn Briem knattspyrnuþjálfari.
Verð fyrir námskeiðið er kr.8.000 fyrir 10 tíma. Börnin fá boli merkta skólanum og Víkingi.
Fylla þarf út skráningablaðið hér að neðan og senda á oliola@vikingur.is og fá staðfestinu á að það sé pláss síðan þarf að millifæra inná reikning aðalstjórnar sjá einnig hér að neðan.
SKRÁNINGABLAÐ
Hægt
er að greiða með millifærslu í gegnum netbanka eða hjá bönkum og
sparisjóðum inná reikning aðalstjórnar: 130-05-8270 130-05-8270 kt.
700269-0789
Í skýringu skal setja: "ÍB-nafn barns".
Kvittun skal senda á oliola@vikingur.is
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Ólafsson íþróttastjóri Víkings.