lesa frétt

Fjölskylduhátíð í Víkinni og frítt á leik Víkings og ÍR

2.9.2010
Á laugardaginn kemur er næst síðasti heimaleikur sumarsins hjá mfl. karla. Andstæðingar að þessu sinni verða ÍR-ingar.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Víking. Liðið okkar trónir á toppi deildarinnar og aðeins þrír leikir eftir. Stuðningur við strákana hefur vaxið með hverjum leik og það var sérlega ánægjulegt að sjá hvað margir lögðu leið sína á Seltjarnarnes síðastliðinn föstudag.
 
Í tilefni af opnun nýs veitingastaðar við Sprengisand hefur Grillhúsið ákveðið að bjóða öllum á leikinn
 
Af þessu tilefni verður blásið til fjölskylduhátíðar á laugardaginn og hefst fjörið kl. 12.
  • Hoppukastali fyrir börnin verður á svæðinu
  • Andlitsmálun
  • Grillmeistarar glóða hin víðfræga Víkingsborgara
  • Víkingspeysur, húfur og treflar til sölu
Víkingar - tökum höndum saman, fyllum stúkuna og styðjum strákana.
Við viljum öll sjá liðið okkar í efstu deild að ári.
 
Áfram Víkingur !