lesa frétt

Hvatning frá fulltrúaráði Víkings

3.9.2010
Ágætu Víkingar!

Nú þegar dregur að lokum deildarkeppninnar í knattspyrnu árið 2010 þar sem sú staðreynd blasir við okkur Víkingum að eiga raunhæfa von um það að  leika meðal þeirra bestu á næsta keppnistímabili er brýnt að við sýnum piltunum stuðning í verki. Leikir liðsins nú síðsumars hafa farið verulega batnandi sem lýsir sér í meiri leikgleði og löngun til að ljúka verkinu með stæl og sveiflu.
Nú í vor tóku stjórnir fulltrúaráðs og knattspyrnudeildar félagsins höndum saman með sérstöku átaki að fjölga áhorfendum á heimaleiki liðsins. Það átak hefur greinilega verið að skila sér nú í síðustu leikjum liðsins. En betur má ef duga skal og vill fulltrúaráð félagsins hvetja með þessu ávarpi Víkinga út um allan bæ sem og hverfisbúa að fjölmenna á þá þrjá leiki sem eftir eru.  Ekki þarf að fara í frekari grafgötur um það hvílík lyftistöng og vítamínsprauta það yrði fyrir félagið í víðu samhengi að fara upp um deild í knattspyrnunni nú á haustdögum.
 
F.h stjórnar fulltrúaráðs Kf. Víkings
Ólafur Þorsteinsson