lesa frétt

2. fl. kvenna. Síðasta leik lokið

7.9.2010

2. fl. kvenna HK/Víkings lék sinn síðasta leik á þessu keppnistímabili við Þrótt í Laugardalnum. Úrslitin voru svolítið í stílnum við þetta tímabil, tap 4-2. Flokkurinn er búinn að eiga nokkuð erfitt tímabil vegna manneklu sem hefur leitt til þess að ekki hefur gengið að byggja upp liðsheild heldur hefur frekar þurft að manna leikina frá einum leik til annars.

Ekki verður þó annað sagt en að HK/Víkingur hafi átt sinn hlut í þessum leik. Fyrstu mörk leiksins voru Þróttar og það fyrra má skrifa á samhæfingarskort í vörninni þegar kantmaður Þróttar slapp upp í horn, og náði fyrirgjöf á óvaldaðan leikmann sem átti auðveldan eftirleik. Annað markið hins vegar langlyktaði dálítið af rangstöðu þegar gefin var stungusending inn fyrir vörnina. HK/Víkingur náði hins vegar upp ágætu spili í fyrri hálfleik eftir þetta og réði í raun gangi leiksins þar sem miðjumennirnir, Karen Ósk Þórisdóttir, Berglind Víðisdóttir og Hildigunnur S. Eldjárn áttu oft góðan samleik með stuttum sendingum en mestu vandræðin stöfuðu þó að Þróttaravörninni í sóknarmönnunum þeim Guðrúnu Hermannsdóttur og Maríu Rún Gunnlaugsdóttir sem vörnin réði illa við enda báðar sprettharðar mjög. Það var enda svo að María lagði grunn að fyrra marki HK/Víkings er hún slapp í gegn upp hægri kantinn og náði góðu skoti að marki sem markmaðurinn náði ekki að halda þannig að Elísabet Daðadóttir fylgdi eftir og skoraði með föstu skoti efst í markið. Bæði lið hefðu getað bætt við mörkum en staðan var 2-1 í hálfleik. Í þeim síðari var leikurinn svolítið kaflaskiptur fyrst í þokkalegu jafnvægi en þegar leið að lokum náði Þróttur að bæta tveimur mörkum við áður en HK/Víkingur náði að minnka muninn með marki frá Þórhönnu Ingu Ómarsdóttur sem vann boltann af harðfylgi af varnarmanni sem uggði ekki að sér. Gott einstaklingsframtak það.

Lauk leiknum þannig með sanngjörnum úrslitum miðað við gang leiksins en leikmenn HK/Víkings gátu gengið kinnroðalaust frá þessum leik eftir ágæta frammistöðu.

Frétt af heimasíðu HK

Meðfylgjandi myndir voru teknar á leiknum en fleiri eru komnar á netið, smellið hér.

Mynd 1. María Rún Gunnlaugsdóttir hleypti góðu lífi í sóknarleikinn.
Mynd 2. Karen Ósk átti ágætan leik á miðjunni.
Mynd 3. Ellen Björg Torfadóttir á ferð með boltann í sínum síðasta leik í 2. fl. en hún er á elsta ári í flokknum.
Mynd 4. Margrét Ýr Björnsdóttir var fyrirliði liðsins og líka í sínum síðasta leik.
Mynd 5. Hildigunnur átti ágætan leik á miðjunni.