
Næstkomandi fimmtudagskvöld (28.apríl) kl. 20.00 verður árlegt stuðningsmannakvöld knattspyrnudeildar í Víkinni.
Dagskráin er glæsileg þar sem Andri Marteinsson þjálfar mun fara fyrir fríðum flokki sérfræðinga sem leggja munu mat á Víkingsliðið og úrvalsdeildina sem framundan er. Einnig er von á þrumuræðum frá fyrirliðanum og formanninum. Eiturhressi íþróttafréttamaðurinn Gaupi er svo gestur kvöldsins.
Aðgangur er ókeypis að vanda og veitingar á vægu verði.
Ársmiðar til meðlima Víkingasveitarinnar verða afhentir á stuðningsmannakvöldinu. Einnig verður hægt að tryggja sér ársmiða á apríl tilboðinu, nú eða skrá sig í Víkingasveitina.
Víkingskveðja frá knattspyrnudeild