
Hlutverk
fulltrúaráðsins er ekki síst að virkja eldri Víkinga til þátttöku í
félagsstarfi Víkinga og fjölga þeim sem eru virkir.
Leggja sitt af mörkum til að gera Víkina að fjölsóttari stað
eldri Víkinga og standa í því skyni fyrir ýmsum uppákomum.
Innheimta félagsgjöld og afla fjár til ýmissa málefna - sem
oft koma fyrirvaralítið upp.
Gefa verðlaunagripi í mótum eða keppnum sem fulltrúaráði
finnst hæfa.
Verkefni
fulltrúaráðsins.
Samkvæmt brúk og skikk eru verkefni fulltrúaráðsins bæði
mörg og þörf. Hefð er fyrir því að
fulltrúaráðið sjái um ákveðin verkefni árlega en að auki mótar fólkið sem situr
í fulltrúaráðinu línuna í takti við það sem gerist í félaginu hverju sinni.
Föst árleg verkefni
fulltrúaráðs.
Golfmót Víkings.
Innheimta félagsgjalda.
Vorfagnaður Víkings.
Önnur verkefni í
vinnslu.
Minningarsteinn.
Vinna að því að settur verði upp Minningarsteinn á auðri lóð
við Túngötu 12 til a minnast stofnunar Knattspyrnufélagsins Víkings - Félagið
var stofnað þar í kjallara hússins en þar komu saman 32 fermingarpiltar í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið hjá Þórði
Thoroddsen, þá starfandi lækni í
Reykjavík frá árinu 1904 til dauðadags 1939, föður Emils Thoroddsens eins fermingarpilta,
rétt við hornið á Túngötu og Suðurgötu og þar var félagið stofnað.
Mörkin. – Halda
til haga framgangi útfærslu og afhendingu framtíðarsvæðisins Markarinnar í
samvinnu við borgaryfirvöld, íbúa í nágrenninu og þá sem hafa landið á leigu.
Mjög brýnt mál fulltrúaráðsins að koma þvi máli í eðlilegan farveg.
Ýmis samskipti milli
félgsins og Borgarinnar varðandi mörg mál t.d. bílastæðamál, skipulagsmál
osfrv. - Hafa púlsinn á ferli viðbyggingarinnar
Víkurinnar - hækkun.
Kaupa 10-15 manntöfl til notkunar í Félagsheimili Víkings.