
Skráning hafin á næsta námskeið sem hefst laugardaginn 21. janúar 2012.
Íþróttaskóli barnanna fer fram á laugardögum í íþróttasal Réttarholtsskóla við Réttarholtsveg.
Á vegum Knattspyrnufélagsins Víkings er starfræktur Íþróttaskóli barnanna sem ætlaður er börnum á aldrinum 2-4 ára. Þar fer fram fjölbreytt og áhugaverð dagskrá þar sem haft er að leiðarljósi að efla skyn- og hreyfiþroska barnanna ásamt því að kenna þeim að vinna með öðrum, umgangast aðra og taka tillit hvort til annars
Vornámskeið 2012
Hópnum er iðulega skipt í tvennt:
Börn fædd 2009 kl. 9:30
Börn fædd 2008 - 2007 kl. 10:25
Mælt er með að börnin mæti berfætt eða í sokkum með stjörnum undir svo þau nái sem bestu gripi á gólfinu og renni ekki. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að taka þátt í tímunum og vera börnunum til aðstoðar t.d. í áhaldahringjum og við klifur. Ef barn er óöruggt á einhvern hátt (skortir kjark eða færni) þarf líka að styðja það vel í upphafi og draga sig síðan í hlé þegar færnin verður meiri og sjálfstraust eykst.
Aðstaða er til fataskipta sé þess óskað.
Skráning og greiðsla er hér að neðan.
SKRÁNING
Verð fyrir námskeiðið er kr.8.000 fyrir 10 tíma. Að venju fá börnin boli merkta skólanum og Víkingi.
Aðeins er pláss fyrir 25 börn í hvoru námskeiði.
Hægt er að ganga frá greiðslu og skráningu hér á netinu. SKRÁNING
Kennarar í Íþróttaskóla barnanna eru Anna Kristín Gunnlaugsdóttir og Maríanna Þórðardóttir íþróttakennarar.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um Íþróttaskóla barnanna í Víkinni í síma 581-3245 eða tölvupóstfang oliola@vikingur.is.

Myndir frá íþróttaskólanum
Íþróttaskóli barnanna 2008
íþróttaskóli barnanna haust 2010