Hlutverk og framtíðarsýn

  • Hlutverk Knattspyrnufélagsins Víkings er að iðka og útbreiða íþróttir og stuðla að heilbrigðu og þroskandi félagslífi. Félagið skilgreinir sjálft sig sem hverfisfélag fyrir Fossvogs- og Bústaðahverfi í Reykjavík.
  • Víkingur stuðlar að iðkun íþrótta fyrir almenning, keppnis- og afreksfólk og hefur einnig á stefnuskrá sinni að sjá um rekstur íþróttaskóla í samvinnu við grunnskóla og íbúa í Víkingshverfinu. Þá er markmiðið að því að bjóða upp á íþróttir, útivist og líkams- og heilsurækt fyrir alla fjölskylduna.
  •  Í félaginu er lögð rík áhersla á góðan félagsanda, hlýlegt umhverfi og gott viðmót innan sem utan vallar. Stefnt er að því að skapa félagsmönnum góðar aðstæður til íþróttaiðkunnar og keppni. Þá er áhersla lögð á æfingaaðstöðu og markvissa kennslu fyrir alla aldurshópa í fögru og góðu umhverfi.
  •  Í þjálfun og kennslu er leitast við að taka tillit til getu og aldurs iðkenda og þeim fundin verkefni við hæfi hverju sinni. Deildir félagsins eru hvattar til að starfa eftir þessum markmiðum og öðrum sem fram koma í íþróttanámskrá félagsins.