
Lög Knattspyrnufélagsins Víkings
1.gr.
Nafn
Nafn félagsins er
Knattspyrnufélagið Víkingur. Aðsetur þess er í Reykjavík.
2.gr.
Markmið
Markmið félagsins er að iðka og útbreiða íþróttir og stuðla að heilbrigðu
og þroskandi félagslífi, í samræmi við gildandi íþróttanámsskrá félagsins á hverjum
tíma og gildandi stefnu ÍSÍ um barna-, unglinga- og afreksíþróttir.
3. gr.
Deildaskipting
Félaginu er skipt í deildir eftir íþróttagreinum og hefur hver deild eigin
stjórn og eigin fjárhag. Allar deildir lúta aðalstjórn, sem fer með æðsta vald
í málefnum félagsins á milli aðalfunda og mótar starfsemi félagsins í samráði við stjórnir deilda.
4. gr.
Innganga
Félagi verður sá einn, sem skráður
er í félagatal. Félagið er opið öllum sem áhuga hafa á að starfa innan þess að
íþrótta- og félagsmálum. Þeir gerast sjálfkrafa félagar sem æfa með félaginu,
en aðrir skrá sig á þar til gerð eyðublöð.
5. gr.
Merki og búningar
Merki félagsins er
skjöldur V-laga, og er V-ið hvítt.
Ofantil í V-inu er brúnleitur knöttur, en fyrir neðan hann eru svartar
og rauðar lóðréttar rendur.
Ekki er heimilt að
breyta merki félagsins en bæta má við félagsmerkið nafni eða merki deildar að
fengnu skriflegu samþykki aðalstjórnar.
Búningur er peysa með
lóðréttum röndum, svörtum og rauðum. Buxur skulu vera svartar og sokkar
svartir, rauðir eða hvítir.
Einstökum deildum skal
heimilt að notast við annars konar keppnisbúninga, þar sem við á, að fengnu
samþykki aðalstjórnar.
6. gr.
Fulltrúaráð
Í félaginu starfar
fulltrúaráð samkvæmt „Reglugerð fyrir
Fulltrúaráð Víkings”.
7. gr.
Reikningar
Aðalstjórn annast
færslu bókhalds og hefur eftirlit með fjárreiðum allra deilda félagsins.
Aðalstjórn gerir
heildar rekstrar- og efnahagsreikning yfir allan fjárhag félagsins. Ársuppgjör
deilda fyrir síðastliðið reikningsár skal lokið fyrir 15. mars ár hvert.
Ársuppgjöri félagsins skal lokið fyrir 30. apríl ár hvert. Skoðunarmenn eru
hinir sömu fyrir aðalstjórn og deildir.
8. gr.
Aðalfundur félagsins
Aðalfundur félagsins
skal haldinn eigi síðar en fyrir lok maí ár hvert.
Til aðalfundar skal boðað með auglýsingu í a.m.k. einu dagblaði með almenna
útbreiðslu í Reykjavík með minnst viku fyrirvara.
Aðalfundur hefur æðsta
vald og ákvörðunarrétt í öllum málefnum félagsins.
Aðalfundur telst lögmætur, ef löglega er til hans
boðað.
Allir félagar í Víkingi geta setið aðalfund sem
áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt.
Allir félagar 16 ára og eldri eru kjörgengir sem
fulltrúar á aðalfund félagsins.
Atkvæðisrétt hafa eftirfarandi fulltrúar sem eru skipaðir
af stjórn hverrar deildar eða ráðs:
1.
15
fulltrúar
knattspyrnudeildar.
2. 15 fulltrúar
handknattleiksdeildar.
3. 6 fulltrúar skíðadeildar.
4. 5 fulltrúar borðtennisdeildar.
5. 6 fulltrúar fulltrúaráðs.
6. 5 fulltrúar
tennisdeildar.
7. 5 fulltrúar
karatedeildar.
Í upphafi aðalfundar skal afhenda kjörbréf þeirra
fulltrúa sem fundinn sækja.
Enginn fulltrúi má fara með meira en 1 atkvæði á aðalfundi
félagsins.
Tillögur til lagabreytinga skulu berast aðalstjórn eigi
síðar en 3 vikum fyrir aðalfund.
Aðalstjórn skal kynna
stjórnum allra deilda tillögur til lagabreytinga minnst viku fyrir boðaðan
aðalfund félagsins. Þó má taka fyrir tillögur til lagabreytinga ef 2/3
atkvæðisbærra fundarmanna samþykkja.
Til lagabreytinga þarf samþykki 2/3 greiddra
atkvæða.
Aðrar tillögur sem lagðar eru fram á aðalfundi hljóta
samþykki með einföldum meirihluta, sjá þó 23. gr.
Formaður aðalstjórnar skal kosin á aðalfundi til eins árs
í senn.
Jafnframt skal kjósa
þrjá (3) meðstjórnendur til tveggja ára í senn. Auk þess skal kjósa einn (1)
mann í varastjórn til tveggja ára í senn.
9. gr.
Aukaaðalfundur
Aukaaðalfund
má halda, ef aðalstjórn telur þess þörf, eða ef ¾ hluti deilda félagsins
krefjast þess skriflega. Um aukaaðalfund gilda sömu ákvæði og um aðalfund.
10. gr.
Dagskrá aðalfundar félagsins
Á aðalfundi félagsins skulu tekin
fyrir eftirfarandi málefni:
1.
Kosning í þriggja (3) manna í kjörbréfanefnd.
2.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3.
Skýrsla aðalstjórnar, er leggur fram heildarskýrslu um starfsemi
og framkvæmdir á vegum félagsins á liðnu starfsári.
4.
Skýrsla um fjárhag félagsins þar sem lagður er fram til
samþykktar endurskoðaður efnahags- og rekstrarreikningur félagsins í heild.
5.
Tillögur að lagabreytingum lagðar fram til samþykktar.
6.
Kosning formanns til eins árs.
7.
Kosning þriggja (3) manna í stjórn til tveggja ára og
eins (1) í varastjórn til tveggja ára.
8.
Kosning tveggja (2) skoðunarmanna.
9.
Önnur mál.
10.
Fundargerð lesin upp og skráðar athugasemdir ef fram
koma.
11. gr.
Verksvið aðalstjórnar
Á fyrsta stjórnarfundi
eftir aðalfund félagsins skiptir aðalstjórn með sér verkum og skipar
varaformann, ritara, gjaldkera og þrjá meðstjórnendur.
Aðalstjórn ber að efla
félagið og gæta hagsmuna þess í hvívetna.
Aðalstjórn fer með
fjármál félagsins og ber endanlega ábyrgð á fjármálum allra deilda félagsins.
Þá hefur aðalstjórn umráðarétt yfir öllum eigum félagsins, nema umráðaréttur
tiltekinna eigna hafi verið framseldur sérstaklega til einstakra deilda.
Aðalstjórn skal boða á
fund sinn formenn deilda eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en árlega
til viðræðna um málefni einstakra deilda. Formenn deilda skulu þá gefa skýrslur
um starfsemi og fjárhag deilda og ræða sameiginleg mál.
Aðalstjórn ákvarðar
félagsgjöld og skal halda skrá yfir alla meðlimi félagsins.
Formaður boðar
stjórnarfundi, þegar hann eða meiri hluti stjórnar telur nauðsynlegt og er
stjórnarfundur ályktunarhæfur ef a.m.k. 4 (fjórir) stjórnarmenn eða
varastjórnarmenn sækja fund.
Aðalstjórn skal færa
fundargerðir í sérstaka fundargerðabók, en samþykki meiri hluta fundarmanna
þarf til einstakra ákvarðana og ályktana aðalstjórnar.
Aðalstjórn er heimilt
að skipa þær nefndir og ráð innan félagsins, sem hún telur þörf fyrir og setja
þeim reglur.
Aðalstjórn ræður
framkvæmdastjóra að félaginu og ákveður kjör hans. Skal verksvið
framkvæmdastjóra vera daglegur rekstur félagsins og mannvirkja þess, umsjón með
bókhaldi og fjárreiðum, samskipti við sveitarfélög, íþróttahreyfinguna, önnur
íþróttafélög og þess háttar. Starfssvið framkvæmdastjóra skal útfært nánar í
starfslýsingu sem aðalstjórn setur.
12. gr.
Styrktar- og afrekssjóðir
Aðalstjórn ber ábyrgð á styrktarsjóði félagsins og setur
um hann reglugerð.
Aðalstjórn skal einnig setja reglur um afrekssjóði
félagsins.
13.gr.
Aðalfundir deilda
Hver deild skal halda
aðalfund eigi síðar en fyrir lok aprílmánaðar ár hvert og skal hann auglýstur
með að minnsta kosti 7 daga fyrirvara. Þó er heimilt að halda aðalfund deilda á
öðrum tíma, ef sérstök ástæða þykir til, en til þess þarf samþykki aðalstjórnar
hverju sinni. Á lögmætum aðalfundi hafa
allir viðstaddir félagar 14 ára og eldri atkvæðisrétt.
Um kosningu í stjórnir
deilda og afgreiðslu mála á aðalfundi deilda fer eftir 15. gr.
14. gr.
Aðalfundarvanræksla
Vanræki deild að halda
aðalfund fyrir tilsettan tíma, skal aðalstjórn boða til fundarins og sjá um
framkvæmd hans.
15. gr.
Dagskrá aðalfunda deilda
Á aðalfundi deilda skulu tekin fyrir
eftirfarandi málefni:
1.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.
Skýrsla
formanns. Skýrsla (ásamt móta- og
leikmannaskýrslum) skal liggja frammi.
3.
Gjaldkeri gerir grein fyrir endurskoðuðum reikningum.
4.
Kosning formanns.
5.
Kosning tveggja (2), fjögurra (4) eða sex (6) manna
stjórnar, samkvæmt sameiginlegri ákvörðun aðalstjórnar og fráfarandi stjórnar
viðkomandi deildar.
6.
Kosning tveggja (2) til þriggja (3) manna í varastjórn, samkvæmt
sameiginlegri ákvörðun aðalstjórnar og fráfarandi stjórnar viðkomandi deildar.
7.
Önnur mál.
8.
Fundargerð lesin upp og skráðar athugasemdir ef fram
koma.
16. gr.
Verksvið deildastjórna
Kjörnir stjórnarmenn
hverrar deildar skipta með sér verkum, þannig að auk formanns skal vera
varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur, þar sem stjórnarmenn eru
fjórir eða fleiri, en gjaldkeri og ritari þar sem stjórnarmenn eru tveir.
Formaður boðar
stjórnarfundi, sem skylt er að halda reglulega og skulu fundargerðir færðar í
sérstaka fundargerðabók.
Hver deild hefur
sjálfstæðan fjárhag. Stjórnir deilda skulu annast allan daglegan rekstur og til
deildanna rennur ágóði sem kann að verða af starfsemi þeirra.
Deildastjórnir
skulu árlega leggja fram hallalausa rekstraráætlun til aðalstjórnar og fá hana
samþykkta áður en þær gangast undir fjárhagslegar skuldbindingar. Aðalstjórn
ber ekki ábyrgð á öðrum fjárskuldbindingum deilda en þeim sem getið er um í
rekstraráætlun sem hlotið hefur samþykki með áritun sérstaks fjárhagsráðs
aðalstjórnar sem skipað skal formanni, varaformanni og gjaldkera félagsins.
Frávik frá rekstraráætlun og allar viðameiri fjárhagslegar skuldbindingar
deilda skal bera undir fjárhagsráð aðalstjórnar með sama hætti.
Aðalstjórn hefur á
hverjum tíma rétt til að skoða bókhald og fjárreiður deilda og getur í því
skyni tilnefnt sérstakan trúnaðarmann til slíkra verka, sem getur komið með
fyrirmæli og tillögur til úrbóta ef þurfa þykir.
Stjórnum deilda er
heimilt að innheimta æfingagjöld af félögum deildarinnar. Stjórnir skulu halda
skrá yfir alla félaga viðkomandi deilda og skal afrit af þeim sent aðalstjórn.
17. gr.
Eignir
Eignir hverrar deildar
eru sameign félagsins. Hætti einhver deild störfum renna eignir hennar óskiptar
til aðalstjórnar.
18. gr.
Heiðursfélagar og heiðursmerki
Viðurkenningu fyrir
störf í þágu félagsins eða íþóttahreyfingarinnar, svo og fyrir íþróttaárangur,
veitir aðalstjórn samkvæmt „Reglugerð um heiðursfélaga og heiðursmerki
Knattspyrnufélagsins Víkings”.
19. gr.
Úrsögn
Skrifleg úrsögn úr félaginu er heimil hvenær sem er.
Úrsögn skal komið til skrifstofu aðalstjórnar.
20. gr.
Brottrekstur
Hafi félagsmaður
brotið lög þessi eða með framkomu sinni vegið að heiðri félagsins og markmiðum
er aðalstjórn heimilt að víkja honum úr félaginu. Skylt er aðalstjórn að boða viðkomandi
félagsmann á sinn fund og gefa honum kost á að koma á framfæri andmælum.
Ákvörðun aðalstjórnar um brottrekstur er gild, ef ¾ stjórnarmanna samþykkja
brottreksturinn.
21. gr.
Veðsetning fasteigna
Til veðsetningar
fasteigna þarf samþykki ¾ stjórnarmanna aðalstjórnar.
22. gr.
Sala fasteigna og
félagsslit
Sala fasteigna telst
því aðeins lögmæt hafi ¾ stjórnarmanna aðalstjórnar samþykkt hana. Að auki þarf
2/3 atkvæðisbærra félaga á lögmætum aðalfundi að samþykkja söluna.
Félagsslit geta ekki
öðlast gildi nema aðalstjórn samþykki þau og tveir (2) lögmætir aðalfundir hafi
samþykkt félagsslit með 2/3 hluta
greiddra atkvæða.
Aðalfundi vegna
félagsslita skal halda með minnst fjögurra (4) vikna millibili og mest átta (8)
vikna millibili.
23. gr.
Samstarf
Félagið skal vera innan vébanda ÍBR
og ÍSÍ.
24. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi
þegar í stað og falla þá úr gildi eldri lög félagsins.
Ákvæði til
bráðabirgða
Á aðalfundi 2011 skulu kosnir þrír (3) menn í stjórn og
einn (1) í varastjórn til tveggja ára og þrír (3) menn í stjórn og einn (1) í
aðalstjórn til eins árs. Á aðalfundi 2010 eru kosnir sex (6) meðstjórnendur og
tveir (2) menn í varastjórn.
Reykjavík, 13. júlí 2010